Ólafsvík

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. mars 2007 kl. 08:47 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. mars 2007 kl. 08:47 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hilmisgata 7

Sveinbjörn Gíslason byggingameistari byggði húsið Hilmisgötu 7, fyrir, Runólf Jóhannsson og skilaði hann því full kláruðu árið 1930. Runólfur Jóhannsson og Kristín Skaftadóttir bjuggu í húsinu. Á áttunda áratugnum bjó Hafdís Hilmarsdóttir að Hilmisgötu 7. Húsið fékk síðar heitið Ólafsvík.

Steingrímur Ágúst Jónsson, forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar, og Þóranna Margrét Sigurbergsdóttir, leikskólakennari, keyptu húsið árið 1980 og hafa búið þar síðan ásamt börnum.