Kumbaldi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. febrúar 2024 kl. 13:59 eftir 11benedikt (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. febrúar 2024 kl. 13:59 eftir 11benedikt (spjall | framlög) (Skrifaði að kumbaldi brann 8 januar 1950.)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Kumbaldi

Húsið Kumbaldi stóð við Strandveg 4. Það var timburhús austan við Hraðfrystistöðina. Áfast Kumbalda að norðan var fiskaðgerðarhús með hallandi þaki.

Húsið var fiskgeymsluhús fyrir blautfisk yfir vertíðina og fyrir þurrfisk að sumrinu. Þegar húsið var ekki notað til fiskgeymslu var húsið samkomuhús Eyjamanna. Þá var húsið notað til veisluhalda, leiksýninga og grímudansleikja. Var það aðallega notað til þessa á síðustu áratugum 19. aldarinnar og fram yfir aldamót 1900. Kumbaldi brann til kaldra kola 8. janúar 1950.



Heimildir

  • Karl Guðmundsson. Ég man þá tíð... Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1975.