Jón Stefánsson (Úthlíð)
Jón Stefánsson, Úthlíð, fæddist 18. júní 1870 á Leirum undir Eyjafjöllum og lést 9. apríl 1916. Árið 1909 byrjaði Jón formennsku á Fálkanum og þremur árum síðar flytur hann alfarið til Vestmannaeyja. Þá hefur hann formennsku á Haffara en hann ferst á honum 9. apríl 1916 við þriðja mann. Tveir björguðust á óskiljanlegan hátt í stórgrýtisurð austan á Heimaey.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.