Ingólfshvoll

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. september 2006 kl. 08:54 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. september 2006 kl. 08:54 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ingólfshvoll

Húsið Ingólfshvoll var byggt árið 1902 fyrir beitusíld og stóð við Landagötu 3a. Hér var fyrrum íshús Ísfélags Vestmannaeyja. Húsið fór undir hraun.

Nokkrar dætur Steins ásamt sauma- og vinnukonu.

Steinn Sigurðsson klæðskeri bjó í húsinu frá árinu 1908. Hann bjó þar ásamt konu sinni Kristínu Hólmfríði Friðriksdóttur og börnum. Þar bjuggu þau til ársins 1929.