Árni Hannesson
Árni Hannesson fæddist 10. desember 1921 og lést 4. júní 1999. Hann bjó að Brimhólabraut 12 um miðja síðustu öld en að Dverghamri 19 seinni árin. Bróðir Árna var Einar.
Árni var formaður.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Árna:
- Græðis á gjöful svæði
- Gamla Ófeigi svamlar
- Árni, öldur kárni,
- aldrei blauður þó kaldi.
- Fiskar á fjöldans diska
- friðsamur Hannes niður.
- Skýr notar nökkva-stýri
- njótur til frama skjótur.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.