Árni Hannesson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. ágúst 2006 kl. 09:33 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. ágúst 2006 kl. 09:33 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Hannesson fæddist 10. desember 1921 og lést 4. júní 1999. Hann bjó að Brimhólabraut 12 um miðja síðustu öld en að Dverghamri 19 seinni árin. Bróðir Árna var Einar.

Árni var formaður.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Árna:

Græðis á gjöful svæði
Gamla Ófeigi svamlar
Árni, öldur kárni,
aldrei blauður þó kaldi.
Fiskar á fjöldans diska
friðsamur Hannes niður.
Skýr notar nökkva-stýri
njótur til frama skjótur.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.