Helgafell við Helgafellsöxl
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Helgafell“
![](/images/thumb/2/27/Js%C3%BE_0162_h%C3%BAsi%C3%B0_Helgafell_vi%C3%B0_Helgafell.jpg/250px-Js%C3%BE_0162_h%C3%BAsi%C3%B0_Helgafell_vi%C3%B0_Helgafell.jpg)
Húsið Helgafell stendur utan byggðar. Það var reist árið 1936 og stendur við jaðar Helgafells.. Verkalýðsfélögin í Eyjum byggðu húsið og var þar um nokkurra ára skeið starfrækt barnaheimili á vegum þeirra. Barnaheimilið var starfrækt frá 12. júní 1946 til 1959 en þá var reksturinn færður niður á Ásaveg, í húsið Sóla.
![](/images/thumb/f/f4/Helgafellsb%C3%B6rn.jpg/250px-Helgafellsb%C3%B6rn.jpg)
Upp úr 1960 keyptu ungir sjálfstæðismenn í Eyjum húsið og gerðu það upp sem félagsheimili. Húsið var í daglegu tali kallað „Betlehem”, að sögn vegna þess að félagsmenn voru síbetlandi hjá fyrirtækjum í bænum þegar lagfæringar á húsinu áttu sér stað. Önnur skýring á nafninu er mjög vegleg og áberandi ljósaskreyting sem komið var upp á húsinu um jól.
![](/images/thumb/2/26/Helgafell1.jpg/250px-Helgafell1.jpg)
Helgafell hefur verið íbúðarhús Högna Sigurðssonar, fyrrverandi verkstjóra hjá bæjarveitunni, frá Vatnsdal hin síðari ár.