Árni Árnason (Grund)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Árni Árnason“
Árni Árnason var fæddur 14.júlí 1870 að Vilborgarstöðum, sonur Árna bónda þar Árnasonar, er drukknaði af opna skipinu Gauk 13. marz 1874. Móðir Árna og kona Árna eldra var Vigdís Jónsdóttir, f. 1844. Þegar Gaukur fórst, tók Árni Einarsson hreppstjóri á Vilborgarstöðum og Guðfinna kona hans Árna Árnason til fósturs og dvaldist hann þar til tvítugsaldurs. - Árni kvæntist Jóhönnu Lárusdóttur á Búastöðum.
Heimildir
- Þorsteinn Víglundsson. Saga barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum. Blik. 23. árg 1962.