Heimaslóð:Um Heimaslóð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. ágúst 2006 kl. 15:05 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. ágúst 2006 kl. 15:05 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Heimaslóð er sögu-, menningar- og náttúrufarsvefur um Vestmannaeyjar sem rekinn er af Vestmannaeyjabæ. Efni vefsins kemur frá fjölmörgum aðilum. Vefurinn er í stöðugri endurnýjun og á hverjum degi eru greinar uppfærðar eða skrifaðar. Fjölmargir aðilar standa að uppbyggingu vefsins. Þér er boðið að vafra um vefinn, njóta þeirra upplýsinga sem þar er að finna eða að taka þátt í því skemmtilega verkefni að gera vefinn betri og koma að uppbyggingu hans.

Menntamálaráðuneytið í samstarfi við iðnaðarráðuneytið hefur úthlutað styrk til þessa verkefnis til skráningar og miðlunar stafræns menningarefnis á landsbyggðinni. Verkefnið er hluti af Opinni menningu.

Atvinnuleysistryggingasjóður hefur veitt styrki í verkefnið og Nýsköpunarsjóður Námsmanna kom að verkefninu. Sparisjóður Vestmannaeyja hefur veitt styrk í verkefnið.

Saga

Starfsmenn sumarsins 2005 á Klifinu.

Frosti Gíslason ól með sér það hugarfóstur að koma á laggirnar menningarsöguvef um Vestmannaeyjar. Hjálpaði Smári P. McCarthy honum með undirbúning vefsins og kom með þá tillögu að vefurinn yrði á Wiki-formi, þ.e.a.s. að innskráðir notendur geti breytt greinum og lagað. Byrjað var að vinna í Heimaslóð, eftir undirbúningsvinnu, í júní 2005. Þar var hópur ungra manna á ferð. Fóru Smári P. McCarthy og Skapti Örn Ólafsson fyrir verkefninu. Með störfuðu Daníel Steingrímsson, Jónas Höskuldsson og Sigmar Þór Hávarðarson. Vefurinn fór í fulla vinnslu í júní 2005. Fékk vefurinn nafnið Heimaslóð og vann hópurinn í honum þetta sumar. Síðan þá hefur vefurinn verið í stöðugri þróun og unnið að honum af öðrum starfsmönnum og íbúum Vestmannaeyja sem og brottfluttum Vestmannaeyingum.

Sumarið 2006 var enn unnið af krafti við vefinn og kom Daníel aftur að gerð vefsins og með honum voru Margrét Rós Ingólfsdóttir og Sindri Freyr Ragnarsson. Áhersla var á að bæta greinar og að myndskreyta. Mikið af upplýsingum um fólk og hús var safnað og sett á Heimaslóð.

Hugbúnaður

Heimaslóð keyrir á breyttri útgáfu Mediawiki hugbúnaðarins, sem er frjáls hugbúnaður, gefinn út undir skilmálum GNU General Public Licence. Breytingarnar sem hafa verið gerðar eru meðal annars til þess að uppfylla Dublin Core lýsigagnastaðalinn.

Mynd:Vcss.png Mynd:Vxhtml10.png