Einar Runólfsson (formaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 14:52 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 14:52 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Runólfsson fæddist 25. desember 1918. Hann var formaður á Ísleif VE 63.

Loftur Guðmundsson orti formannavísu um Einar:

Einar af keppni æskumanns
Ísleifi af hrönnum beitir
aflasæld og heppni hans
hróðurinn með réttu veitir.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Einar:

Einar Runólfs reiðan sæ
rennir lýð til bjargar,
happa ferðir hefur æ
hann á sjónum margar.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.