Kaupangur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 11:49 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 11:49 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Kaupangur.

Húsið Kaupangur stóð við Vestmannabraut 31, á horni Vestmannabrautar og Hilmisgötu. Magnús Th. Þórðarson, kaupmaður (Mangi Th.), rak verslun í húsinu en það þjónaði síðan ýmsum hlutverkum gegnum tíðina. Þar voru m.a. tannlæknastofa og lögfræðistofa en lengst af var þar rakarastofa þeirra Einars Þorsteinssonar og Ragnars Guðmundssonar. Kaupangur var rifinn skömmu eftir gos.