Samkomuhúsið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 11:07 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 11:07 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Samkomuhúsið á hátíðardegi.

Samkomuhúsið stendur á gatnamótum Kirkjuvegs og Vestmannabrautar, og heitir lóðin Mylluhóll. Húsið var vígt 22. janúar árið 1938 en húsið var í byggingu frá því í október 1936 fram í janúar 1938. Það var Sjálfstæðisfélagið sem byggði húsið. Þá var húsið næststærsti samkomusalur landsins, aðeins Gamla Bíó í Reykjavík var stærra. Húsið var notað til skemmtanahalds í áratugaraðir.

Seinna var byggt við húsið. Það var á árunum 1963-65. Hvítasunnukirkjan keypti húsið á tíunda áratugnum og hefur gert húsið að miklu leyti upp. Nú er Samkomuhúsið enn á ný það húsnæði í Eyjum sem hentar einna best til háklassa tónleikahalds og uppákomna.