Ólafsvík
![](/images/thumb/1/18/Olafsvik.jpg/300px-Olafsvik.jpg)
Húsið Ólafsvík var byggt árið 1930 og stendur við Hilmisgötu 7. Runólfur Jóhannsson og Kristín Skaftadóttir bjuggu í húsinu. Á áttunda áratugnum bjó Hafdís Hilmarsdóttir í Ólafsvík.
Steingrímur Ágúst Jónsson, forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar, og Þóranna Margrét Sigurbergsdóttir, leikskólakennari, keyptu húsið árið 1980 og hafa búið þar síðan ásamt börnum.