Guðmundur Vigfússon (Holti)
Guðmundur Vigfússon fæddist 10. febrúar 1906 og lést 6. október 1997. Foreldrar hans voru hjónin Guðleif Guðmundsdóttir frá Vesturhúsum í Vestmannaeyjum og Vigfús Jónsson í Túni í Vestmannaeyjum. Guðmundur ólst upp í Holti. Guðmundur var kvæntur Stefaníu Guðrúnu einarsdóttur. Þau eignuðust tvö börn, þau Vigfús Sverri og Erlu. Hann fluttist frá Vestmannaeyjum 1957 og hefur lengst af síðan búið í Hafnarfirði, þar af á Hrafnistu í Hafnarfirði frá 1978.
Guðmundur tók vélstjóra- og skipstjórapróf 18 ára gamall og árið 1946 "öldunginn" í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Guðmundur var formaður á Voninni VE 113. Árið 1981 var Guðmundi afhent heiðursskjal Sjómannadagsráðs í Vestmannaeyjum með þökk fyrir gifturík störf í þágu sjómannastéttarinnar og byggðarlagsins.
Loftur Guðmundsson samdi formannsvísu um Guðmund:
- Að veiðum Guðmund Vigfússon
- virðar telja frækinn,
- hleður úr græði græsta Von
- garpur miðasækinn.