Birkir Ívar Guðmundsson
Birkir Ívar Guðmundsson er fæddur 14 september 1976 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans eru Elsa Valgeirsdóttir og Guðmundur Guðlaugsson. Birkir er kvæntur Kristínu Ólafsdóttur og eiga þau tvær dætur, Adelu Björt og Sögu Hlíf.
Birkir kláraði Tækniháskólann og starfaði sem markaðstjóri hjá Fróða um tíma og hjá Impru nýsköpunarmiðstöð.
Birkir lék handbolta með ÍBV og síðar með Haukum í Hafnarfirði. Árið 2006 skrifaði Birkir Ívar undir samning við þýska handknattleiksliðið Nettelstedt Lübbecke. Birkir Ívar er landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta.
Árið 1996 var Birkir Ívar formaður Eyverja.