Jakob Sigurðsson
Jakob Sigurðsson fæddist 1883. Hann kom til Vestmannaeyja 1913 og var formaður með Jóhönnu 1914. Þess ber að geta að Jóhanna var annar báturinn í Eyjum sem var með stýrishús og var það sett fyrir framan vélarhúsið.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. 2 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.