Óskar Matthíasson (Byggðarenda)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2006 kl. 15:35 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2006 kl. 15:35 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Óskar Matthíasson fæddist í Vestmannaeyjum 22. mars 1921 í Garðsauka og lést 21. desember 1992. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Sveinsdóttir og Matthías Gíslason á Byggðarenda. Óskar var giftur Þóru Sigurjónsdóttur og eignuðust þau 7 börn.

Óskar hóf sinn sjómannsferil þegar hann var 17 ára á Emmu með Ragnari Þorvaldssyni. Sagði Óskar eitt sinn að hann hefði verið rekinn í land eftir um hálfan mánuð fyrir sjóveiki og annan ræfildóm. Hann hélt sig þó ekki nema í eitt ár frá sjónum. Hann var háseti og vélstjóri á hinum ýmsu bátum fram til ársins 1944 þegar hann hóf formannsferil sinn. Árið 1944 byrjaði Óskar sem skipsstjóri á Glað, síðan Skuldinni og loks aftur með Glað. En 1946 keypti hann Nönnu, síðan Leó og Þórunni Sveinsdóttur.

Óskar var aflakóngur Vestmannaeyja árið 1965, 1966, 1969 og 1970.


Heimildir