Helgi Bergvinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2006 kl. 08:34 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2006 kl. 08:34 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Helgi Bergvinsson fæddist 26. ágúst 1918 á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð og lést 16. maí 1989. Helgi kom fyrst til Eyja árið 1938. Helgi bjó á Miðstræti 25. Helgi var giftur Leu Sigurðardóttur og áttu þau 5 börn.

Hann hóf sjómennsku árið 1934 á síldveiðibát frá Hrísey en árið 1938 þegar hann kemur til Eyja var hann háseti hjá Páli í Þingholti. Skipstjórn hóf hann 1950, með Mugg. Árið 1956 lét hann ásamt Ágústi Matthíassyni og Gísla Þorsteinssyni byggja bát í V-Þýskalandi sem hlaut nafnið Stígandi, og þar með hófst útgerðarsaga Helga. Þeir félagar keyptu annan bát sem hét Gulltoppur, en hættu fljótlega saman í útgerð og varð Helgi einkaeigandi að Stíganda. Þann bát var hann með í 10 ár.

Árin 1960 og 1963 var Helgi aflakóngur Vestmannaeyja.



Heimildir