Guðjón Jónsson (Hlíðardal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 14:24 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 14:24 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðjón Jónsson


Guðjón Jónsson, Hlíðardal, fæddist 5. desember 1899 að Steinum undir Eyjafjöllum. Guðjón fór fyrst til Vestmannaeyja 16 ára gamall til sjóróðra. Formennsku byrjaði Guðjón árið 1930 á bátnum Siggu. Eftir það var Guðjón með Hebron, Gullfoss og Skuld. Guðjón stundaði mest dragnótaveiði og var einn heppnasti formaður í Eyjum á það veiðarfæri.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.