Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Jú, við þökkum þér, Ási i Bæ
Jú, því við þökkum þér, Ási í Bæ
![](/images/thumb/6/69/Screen_Shot_2017-08-29_at_22.39.38.png/300px-Screen_Shot_2017-08-29_at_22.39.38.png)
![](/images/thumb/6/64/Screen_Shot_2017-08-29_at_22.39.46.png/300px-Screen_Shot_2017-08-29_at_22.39.46.png)
Hann reri á kænum, á kolgráum sænum.
Keipaði færum að fiskununum vænum.
Stundum var lítið, en oftar mjög mikið.
Hver var hann þessi sem studdist við prikið?
- Jú, það var hann Ási,
- það var hann Ási,
- það var hann Ási í Bæ.
En hver annars var hann, og hvort mun hann lifa?
Kann einhver að spyrja, ég segi og skrifa.
Á meðan að sæfarar sigla enn strikið
- munu þeir þekkj'ann sem studdist við prikið.
- Því það var hann Ási,
- það var hann Ási,
- það var hann Ási í Bæ.
Og þeir sem að skemmta sér, syngja og tralla,
sækja í söngva og ljóð svona „kalla“,
- En þeir munu varla skilja hve mikið.
- erfitt oft reyndist að styðjast við prikið.
- Við þökkum þér Ási,
- þökkum þér Ási,
- þökkum þér Ási í Bæ.
Kveðja frá Páli Sigurðarsyni.