Þorsteinn Gíslason (Görðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 13:47 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 13:47 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þorsteinn Gíslason, Görðum, fæddist á Eskifirði 5. maí 1902 og lést 25. maí 1971. Þorsteinn fluttist alfarið til Vestmannaeyja 1919 og það sama ár hóf hann sjómennsku hjá Eyjólfi Gíslasyni bróður sínum á Garðari I. Formennsku hóf Þorsteinn árið 1928 á Garðari II. Eftir það var Þorsteinn með Sjöfn I og Sjöfn II sem voru hans eigin bátar.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þorstein:

Harðskiptinn við domma dröfn
djarfur á þorskaleiðum,
Þorsteinn Gíslason á Sjöfn
sækir fast að veiðum.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.