Björn Eiríkur Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2006 kl. 11:30 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2006 kl. 11:30 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Björn Jónsson fæddist í Gerði í Vestmannaeyjum 16. desember 1884 og lést 30. apríl 1979. Hann var sonur Jóns Jónssonar og Guðbjargar Björnsdóttur. Fyrri kona Björns var Hallbera Illugadóttir en hún lést árið 1934. Seinni kona Björns var Brynheiður Ketilsdóttir úr Mýrdal.

Björn var sjómaður og formaður á opnu skipi. Einnig stundaði hann búskap í Gerði ásamt systur sinni og mági. Hann hafði fé út í Elliðaey og var hjálpsamur við að koma fólki út í Elliðaey.


Heimildir

Sjómanndagsblað Vestmannaeyja. 1979.