Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2010/Godhaab í Nöf

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. september 2018 kl. 13:14 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. september 2018 kl. 13:14 eftir Valli (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Godthaab í Nöf


Sjávarútvegurinn í landinu væri hvorki fugl né fiskur, ef svo mætti að orði komast, ef ekki væri öflug fiskvinnsla í landi. Eitt fyrirtæki hefur sprottið upp í Eyjum og er í dag orðið einn af fjölmennari vinnustöðum bæjarins. Þetta er Godthaab í Nöf en strákarnir standa þessa dagana í stórræðum.
Hjá Godthaab eru í dag um 100 manns á launaskrá en unnið er frá sjö á morgnana til þrjú á daginn. Vinnutíminn er því mjög þægilegur en auk þess vinna nokkrir starfsmenn t.d. frá átta til eitt á daginn. Daði Pálsson, einn eigenda fyrirtækisins sat fyrir svörum hjá Sjómannadagsblaðinu.
Hvað eruð þið að vinna í Godthaab?
„Við erum að vinna þorsk, ýsu og ufsa í ferskt og frost og að hluta í salt líka. Svo erum við með sérvinnslu, Böddabitavinnsluna, þar sem við erum með ýmsar tegundir. Við erum með þorsk, ýsu reykta ýsu, saltfiskhnakka, gellur, steinbít og margt fleira í smápakkningar, sem er allt unnið úr ferskasta hráefni sem hægt er að fá. Svo má auðvitað ekki gleyma harðfisknum vinsæla.“
Það vekur athygli þegar inn í fyrirtækið er komið hversu góður aðbúnaður starfsmanna er. Leggið þið mikið upp úr því?
„Já, við höfum gert það frá upphafi. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni hjá okkur, bæði í starfsmannaaðstöðunni og auðvitað líka í sjálfri vinnunni. Fólk er meirihluta dagsins í vinnu og nauðsynlegt að því líði vel í henni.“
Þið eruð líka að byggja við. Segðu mér aðeins frá þeim framkvæmdum.
„Þetta er viðbygging sem er um 700 fermetrar. Þar inni verðum við með mótorhús sem keyrir nýja frystiskápa sem verða líka inni í viðbyggingunni. Þeir auka frystigetu okkar um 70 tonn á sólarhring. Þar ætlum við einnig að koma upp vélum til að vinna gulllax. Við bindum miklar vonir við þá vinnslu en markaðir fyrir gulllax eru góðir og mikil eftirspurn eftir þessari tegund.“
Hvernig gengur að afla hráefnis í vinnsluna?
„Það hefur gengið ágætlega þrátt fyrir samdrátt í kvóta á þessu ári. Við höfum mest keypt í gegnum útgerðina Berg/Hugin, sem hefur algjörlega staðið við bakið á okkur. Við höfum auðvitað keypt frá fleiri bátum hér í Eyjum, Frá, Berg og frá Vinnslustöðinni og Ísfélaginu en mest frá Berg/Hugin.“
Er góður gangur í rekstrinum þessa dagana?
„Já, já, þetta gengur ágætlega. Reksturinn er réttu megin við núllið enda ef hann væri það ekki, þá værum við ekki að reisa viðbygginguna.' En með því að byggja, er ætlunin að auka veltuna. Svo er von á nýrri og glæsilegri Þórunni Sveinsdóttur VE á haustmánuðum og um leið eykst aðgengi okkar að hráefni fyrir vinnsluna,“ sagði Daði að lokum.