Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Sjómannadagurinn 2008

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2018 kl. 14:10 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2018 kl. 14:10 eftir Valli (spjall | framlög) (Ný síða: Sjómannadagurinn 2008 Eins og alltaf var mikiö um dýröir yfir sjómanna- dagshelgina í Vestmannaeyjum. Formleg dag- skrá hófst um miðjan dag á íostudegi með opnun myndlista...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sjómannadagurinn 2008 Eins og alltaf var mikiö um dýröir yfir sjómanna- dagshelgina í Vestmannaeyjum. Formleg dag- skrá hófst um miðjan dag á íostudegi með opnun myndlistarsýningar Bjarteyjar Gylfadóttur í Akó- ges. Knattspyrnumót áhafna fór fram á sama tíma og uppliföu margir sjóarar horfna drauma um frama á knattspyrnuvellinum. Áhöfnin á Hugin bar sigur úr býtum og þaö ekki í fyrsta sinn. Sjómannagolfið er einnig fastur liöur í hátíðahöldunum á föstudeg- inum en stærsti dagskrárliöur fyrsta dags helgarinn- ar miklu voru tónleikar Árna Johnsen og félaga í Akóges, svokallaö Söngkvöld. Söngkvöldið var að venju afar vel sótt en auk Árna, lék KK og úrval tónlistarfólks. Hátíöahöld laugardagsins voru meö hefðbundnu sniöi. Klukkan 13.00 hófust hátíðahöldin viö Friö- arhöfn í góöu veðri, sól og blíðu. Séra Kristján Björnsson blessaöi daginn og Jack London hitaöi mannskapinn upp fyrir kappróöurinn. Á síðasta ári var í fyrsta sinn keppt á nýjum, færeyskum kapp- róðrabátum sem virtust reynast vel. Þátttaka í kapp- róörinum var góð eins og í öllum dagskrárliöum laugardagsins. í raun hefur þátttakan ekki verið jafn góð í nokkur ár sem er jákvæö þróun hátíðahald- anna. Stór þáttur í vel heppnuðum degi viö Friðarhöfn var hópur Guömundar Vigfússonar sem lék listir sínar á brettum og hjólum, sem vakti verðskuldaða athygli. Þá var unga fólkinu boðið í ferð á sjóþotum um höfnina sem mæltist einkar vel fyrir. Einnig var góð nýbreytni í að halda skákmót sjómanna í tjaldi við Friðarhöfn þar sem sjómenn mættu landkröbb- um en engum sögum fer af úrslitum mótsins. Hátíðarsamkoman í Höllinni var með glæsilegra móti síöasta ár. Eftir glæsilegt borðhald og mynda- sýningu tóku listamennirnir að streyma inn á sviðið. Veislustjóri var Árni Johnsen en fram komu m.a. KK, Santana, Breathe, Jack London og Obbosí. Eyjahljómsveitirnar Tríkot og Dans á Rósum léku svo fyrir dansi fram á rauða nótt. Rúmlega íjögur hundruð manns voru í mat og fór skemmtunin og dansleikurinn vel fram að öllu leyti. Sjálfur Sjómannadagurinn, sunnudagurinn hófst svo meö því að fánar voru dregnir að húni. Sjó- mannamessan hófst stundvíslega klukkan 13.00, Fjölmenni var á bryggjunni. prestur var séra Kristján Björnsson en organisti var Annika Tonuri Felixdóttir. Svava Tara Ólafs- dóttir og Selma Jónsdóttir fluttu ritningarlestur og Kór Landakirkju söng. Eftir messu fór fram hin árlega minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaöra. Ræðumaður var Snorri Óskarsson en heiðurshjónin Gunnar Árnason og Kristín Valtýs- dóttir lögðu blómsveig viö minnisvarðann. Það lán var yfir sjómönnum Eyjanna að enginn hafði farist frá síðasta sjómannadegi. Klukkan 15.00 hófst svo hátíðardagskrá á Stakka- gerðistúni með flutningi Lúðrasveitar Vestmanna- eyja en sveitin hafði einnig spilað við minningarat- höfnina sem minnst var á hér að framan. Veðrið var heldur hryssingslegt á sjómanndaginn 2008 en oft hafa fleiri mætt á Stakkó viö þessi tímamót en í fyrra. Helgast slök mæting líklega fyrst og fremst af veðurfarinu. Hátíðarræðuna flutti Ingi Sigurðs- son, útibússtjóri Glitnis, nú íslandsbanka og fyrrum bæjarstjóri Vestmannaeyja. Verðlaun voru veitt fyr- ir afrek hátíðahaldanna í Friðarhöfn og fyrir knatt- spyrnumótiö. Þá heiðruðu sjómannafélögin sína fé- laga en nánar er sagt frá því annars staðar í blaðinu. Leikfélagið og fimleikafélagið sáu svo um að yngstu kynslóðinni leiddist ekki og tónlistarmenn skemmtu bæði ungum sem öldnum. Sú skemmtilega hefð hefur skapast að ljúka sjómannadagshelginni með svokölluðum sjómannadagstónleikum í Höllinni á sunnudagskvöldið. Allir listamennirnir komu úr Eyjum nema KK en þegar hann kom fram, kallaði hann á Bergvin Oddsson, Bedda á Glófaxa og sam- an tóku þeir nokkur lög við góðar undirtektir við- staddra. Aðrir sem komu fram voru Obbósí ásamt sex manna brassbandi, sönghópur eldri borgara, Leó Snær, Elísabet Þorvaldsdóttir, Árni Óli og Vé- dís, Afrek og Haraldur Ari. Glæsilegur endir á vel heppnaðri sjómannadagshelgi. Júlíus G. Ingason