Marinó Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júlí 2006 kl. 15:02 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júlí 2006 kl. 15:02 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurvin Marinó Jónsson fæddist 20. maí árið 1900 og lést 16. desember 1962. Foreldrar hans voru Jón Jónsson og Manasína Sigurðardóttir að Skógum á Þelamörk í Eyjafirði. Árið 1924 kvæntis hann Guðbjörgu Guðnadóttir frá Skagafirði.

Fljótlega eftir fermingu kom Marinó eins og hann var oftast kallaður til Vestmannaeyja í atvinnuleit. Framan af stundaði hann almenna vinnu en fór fljótlega á sjóinn og stundaði sjómennsku í 23 ár, fyrst sem vélstjóri en lokaárin sem skipstjóri. Marinó hætti á sjónum vegna heilsubrests og sneri sér þá að pípulagningarstörfum. Var hann í sjálfstæðum rekstri þar til hann lést.


Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1963.