Guðmundur Gíslason (Vilborgarstöðum)
Guðmundur Gíslason, Vilborgarstöðum, fæddist 9. janúar árið 1882 á Seljavöllum undir Eyjafjöllum. Guðmundur fluttist til Vestmannaeyja 1904 og varð formaður 1907 þegar hann, ásamt fleirum, kaupir Stefni og hefur formennsku á honum til 1913. Eftir það var Guðmundur formaður með ýmsa báta fram yfir 1920.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.