Helgafell við Helgafellsöxl

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 08:48 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 08:48 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Lagfærði tengil)
Fara í flakk Fara í leit
Húsið Helgafell við jaðar Helgafells

Húsið Helgafell stendur utan byggðar. Það var reist árið 1936 og stendur við jaðar Helgafells.. Verkalýðsfélögin í Eyjum byggðu húsið og var þar um nokkurra ára skeið starfrækt barnaheimili á vegum þeirra. En upp úr 1960 keyptu Eyverjar|ungir sjálfstæðismenn í Eyjum húsið og gerðu það upp sem félagsheimili. Húsið var í daglegu tali var kallað „Betlehem”, að sögn vegna þess að félagsmenn voru síbetlandi hjá fyrirtækjum í bænum þegar lagfæringar á húsinu áttu sér stað. Önnur skýring á nafninu er mjög vegleg og áberandi ljósaskreyting sem komið var upp á húsinu um jól.

Helgafell hefur verið íbúðarhús Högna Sigurðssonar frá Vatnsdal hin síðari ár.