Ólafur Jónsson (Skála)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 13:15 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 13:15 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Jónsson, Skála, fæddist að Hvammi undir Eyjafjöllum 21. september 1897. Ólafur fór ungur með foreldrum sínum, Jóni Auðunssyni og Sigríði Ólafsdóttur að Skála og ólst þar upp.

Ólafur fór strax og aldur leyfði til sjóróðra í Vestmannaeyjum og var þar fljótlega vélamaður hjá Þorsteini Jónssyni í Laufási á Unni III en árið 1938 tók Ólafur við formennsku á Unni því þá lét Þorsteinn af formennsku. Ólafur var einnig formaður á Ástdísi og Hjálpara.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.