Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1977/Prestasteinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. júní 2017 kl. 08:53 eftir Mardis94 (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. júní 2017 kl. 08:53 eftir Mardis94 (spjall | framlög) (Ný síða: 500px|center|thumb|Prestasteinn. (Ljósm.: Guðm. Sigf.) Við rætur Helgafells að norðan, efst í Skuldartúninu gamla, er hraunhól...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Prestasteinn. (Ljósm.: Guðm. Sigf.)

Við rætur Helgafells að norðan, efst í Skuldartúninu gamla, er hraunhóll einn stæðilegur, er Prestasteinn heit-ir. Þangað teygir sig nú byggðin næst Helgafelli. Munnmæli herma að nafn Presta-steins sé þannig til komið: Fyrr á árum voru tvö prestaköll í Vestmannaeyjum, sat annar prestur¬inn að Ofanleiti en hinn á Kirkjubæ. Sagt er að þegar annar presturinn fór að finna hinn, hafi sá er heimsóttur var jafnan fylgt hinum heim á leið að heimsókn lokinni og að hraunhóli þessum, en þaðan sá vel til beggja bæjanna, Ofanleitis og Kirkjubæjar. Af þessari siðvenju hafi hraunhóllinn svo hlotið nafnið Prestasteinn.