Auðunn Oddsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 09:19 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 09:19 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Auðunn Oddsson, Sólheimum, fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri 24. september 1893. Auðunn flytur til Vestmannaeyja árið 1927 og gerist sjómaður á Mínervu. Hann byrjar formennsku á Enok I en er síðar með Síðuhall, Nonna (sem Auðunn tapaði við árekstur suður af Eyjum), Valdimar og Guðrúnu. Eftir það hætti Auðunn formennsku en stundaði þó sjómennsku eftir það.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.