Sigurfinnur Lárusson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 13:41 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 13:41 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurfinnur Lárusson fæddist 9. maí 1894 í Mýrdal. Til Vestmannaeyja fór Sigurfinnur ungur að árum og gerðist þar sjómaður. Fyrst var hann á Immanúel í fjölda vertíða en árið 1922 er hann formaður á Njál en á vertíðinni 1923 ferst hann á Njáli með allri áhöfn við fimmta mann upp í landsteinum við syðri hafnargarð.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.