Barnaskólinn í Vestmannaeyjum 1880-1930/Barnaskólinn/Gjörðabók/Gjörðabók fyrir skólanefndina í Vestmannaeyja skólahéraði 1909-1932 texti bls. 41-50

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. maí 2017 kl. 13:38 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. maí 2017 kl. 13:38 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) (Ný síða: Ár 1916, hinn 24. júní átti skólanefnd Vestmannaeyja fund með sjer að Heiði. Mættu þá aðeins 3 nefndarmenn, þeir Sigurður Sigurfinnsson, Sveinn P. Scheving og Árni F...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ár 1916, hinn 24. júní átti skólanefnd Vestmannaeyja fund með sjer að Heiði.

Mættu þá aðeins 3 nefndarmenn, þeir Sigurður Sigurfinnsson, Sveinn P. Scheving og Árni Filippusson.

Þá var lagður fram reikningur barnskólans fyrir skólaárið 1915 og 1916 með 26 fylgiskjölum. Var reikningurinn athugaður, samþykktur og undirskrifaður á fundinum.

Einnig voru lagðar fram, yfirskoðaðar og undirskrifaðar hinar fyrirskipuðu skýrslur skólans fyrir sama skólatímabíl í tvennu lagi.

Fleira fjéll ekki fyrir. Fundi slitið.

Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Sveinn P. Scheving.










Árið 1916, 16. júlímánaðar var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Allir skólanefndarmenn mættu.

 Formaður nefndarinnar las upp brjef frá yfirkennara Birni H. Jónssyni, dags. í dag, um kennaraefni, Guðjón Guðjónsson frá Skarfhóli í Miðfirði, sem gefur kost á sér sem kennara skólans næsta ár með 600 kr. launum.
 Einnig las formaður upp brjef, dags. 24. f. m., frá Guðnýju Jónsdóttur, þar sem hún sækir um kennslustarfa við barnaskólann.  Einnig lýsti formaður yfir því að Jónína Þórhallsdóttir ætli sér að hafa á hendi kennslu við skólann næstkomandi skólaár.  Nefndin áleit að kennarakonan Jónína Þórhallsdóttir héldi að sjálfsögðu starfa sínum áfram, fyrst hún gæfi kost á sér.
  Um hina kennarana: þau Guðnýu Jónsdóttur og Guðjón Guðjónsson urðu nokkrar umræður en sökum þess að skólanefndin sá fram á, að hún myndi lenda í vandræðum með leikfimiskennslu sem Guðný var ekki fánleg til að taka að sér, en Guðjón þar á móti fús til, auk þess sem hann hafði góð meðmæli frá skólastjóra Magnúsi Helgasyni og skólastjóra Birni H. Jónssyni, þá afrjeð nefndin í einu hljóði að veita Guðjóni Guðjónssyni kennslustarfann við skólann næsta ár með 600 kr. launum.
Því næst var kosinn formaður og ritari skólanefndarinnar fyrir næsta ár og var Árni Filippuson kosinn formaður og Jes. A. Gíslason ritari.

Fleira fjell ekki fyrir fundinn og var fundi slitið.

Árni Filippusson Jes. A. Gíslason

Sveinn P. Scheving Brynj. Sigfússon Sigurður Sigurfinnsson




Sjá samninga á bls. 190 og 192



Ár 1916, þriðjud. 26. sept., hélt skólanefndin fund með sjer að Ásgarði til þess að ræða um það að barnaskólahús hreppsins hefur verið tekið til sóttkvíunar og því fyrirsjáanlegt að ekki verður byrjuð þar kennsla 1. n. m. og ekki um ófyrirsjáanlega langan tíma. Eftir nokkrar umræður kom nefndin sjer saman um, að senda stjórnarráði Íslands svolátandi símskeyti: Skólahús hjeraðsins hefur af lögreglustjóra verið tekið til afnota við mislingavarnir að skólanefnd forspurðri. Hefur lögreglustjóri vald eða heimild til þessa? Hvernig á skólanefnd að haga sér ef skólahald sem á að byrja fyrsta október verður fyrirbyggt um lengri eða skemmri tíma? Svar óskast sem fyrst.

Fleira fjell ekki fyrir fundinn. Fundi slitið.

Árni Filippusson Jes A. Gíslason Br. Sigfússon Sveinn P. Scheving










Mánudaginn 9. okt. 1916 átti skólanefnd Vestmannaeyja fund með sjer að Ásgarði. Fundarmenn allir mættir. Tilefni fundarins voru tvö brjef frá kennurum skólans, annað frá þeim Eiríki Hjálmarssyni og Ágústi Árnasyni, en hitt frá Jónínu Þórhallsdóttur. Brjef hinna fyrri dags. í gær, en hið síðara í dag. Efni brjefanna: að farið er fram á (dýrtíðar)uppbót á launum við skólanefndina fyrir hið nýbyrjaða skólaár.

Eftir nokkrar umræður kom nefndin sér saman um, að veita þeim Ágústi Árnasyni og Jónínu Þórhallsdóttur 250 kr. dýrtíðaruppbót hvoru yfir skólaárið (1916-17) og Eiríki Hjálmarssyni 300 kr. dýrtíðaruppbót fyrir sama tíma.  Nefndin vill geta þess sem ástæðu fyrir því að Eiríki er veitt ríflegri uppbót en hinum, að hann hefur um langan tíma unnið að kennslustörfum hér fyrir mjög lágt kaup, en sökum aldurs á óhægt um vik að leita sér aukavinnu sem áreynsla er samfara.

Aukatímunum þremur sem ætlaðir eru 1. bekk skólans, kom nefndin sér saman um við skólastjóra, að kennarar skólans skiptu með sér eftir eigin geðþótta með umsömdum launum: 100 kr. fyrir hvern tíma eða 300 kr. alls. Skólastjóri lagði fram tímatöflur skólans og var skólanefnd þeim samþykk eins og þær lágu fyrir.

Nefndin fól skólastjóra fyrir hennar hönd að gera þeim sem ættu börn á skólaaldri, en ætluðu þeim heimkennslu, aðvart með auglýsingu að sækja um undanþágu frá skólagöngu fyrir börn sín fyrir 15. þ. m.

Formaður nefndarinnar lagði fram tvö brjef frá umsjónarmanni fræðslumála. Var annað tilkynning um kennslustyrk skólans, 600 kr. fyrir hið liðna ár úr landssjóði. Brjefið það dags. 1. ág. þ. á. Hitt brjefið, dags. 9. sept. þ. á. ræðir um ýmsar varúðarreglur um heilsu barna í barnaskólum, sem sjeu undir sérstakri gæslu héraðslæknis er gefi vottorð þar um í lokin. Söngkennara fyrir skólaárið rjeð nefndin Brynjólf organista Sigfússon.

Formaður skýrði frá því að hann hefði ráðið Berg Jónsson í Stafholti til þess að ræsta salerni skólans, en Þórunni Magnúsdóttur  í Nýjahúsi til að ræsta skólahúsið.  Berg fyrir 25-30 kr. alls og Þórunni fyrir 25 kr. um mánuðinn.

Fleira fjell ekki fyrir fundinn. Fundi slitið.

Árni Filippusson Br. Sigfússon Sveinn P. Scheving Jes A. Gíslason



Sunnudaginn 19. nóvember 1916 átti skólanefnd Vestmannaeyja fund með sjer að Ásgarði. Á fundinum mættu allir nefndarmenn einnig hinn nýkosni skólanefndarmaður Gunnar kaupmaður Ólafsson.

 Formaður skólanefndarinnar las upp brjef dags. 18. þ. m. frá tveimur kennurum skólans, þeim Eiríki Hjálmarssyni og Ágústi Árnasyni, þar sem þeir fara fram á ríflegri launahækkun, en þá launahækkun, sem skólanefndin hafði samþykkt til handa nefndum kennurum á síðasta skólanefndarfundi 9. okt. síðastl.

Eftir nokkrar umræður kom nefndin sér saman um að veita nefndum kennurum 150 króna bráðabirgðauppbót hvorum auk áður tilnefndrar bráðabirðgðaruppbótar þannig að hvor þeirra hafi að launum 850 krónur fyrir yfirstandandi skólaár.

  Þvínæst var tekið fyrir að gera áætlun um kostnað við skólahaldið á yfirstandandi skólaári og var á þessa leið:

1. Laun kennara

    a. Laun Björns H. Jónssonar     (1500 +200 	kr. 1.700.00	
    b.          Eiríks Hjálmarssonar	  „       850.00	
    c.          Ágústs Árnasonar 	  „      850.00	
    d.          Jónínu Þórhallsdóttur	  „      700.00	
    e.          Guðjóns Guðjónssonar	  „      600.00	
    f.           Aukabekkurinn tímakennsla	  „      300.00	  5.000.00

4. Ræsting (skólahúss 150.00 + salerna 25.00) 175.00 2. a. Kol 495.00

    b.           Annað eldsneyti (spýtur og olía)	          25.00	     520.00
6.               Sápa og sódi		       20.00
5.               Aukaræsting (árleg)		       40.00
7.               Viðhald kennsluáhalda		       20.00
8.               Ýmis gjöld		       15.00
3.                Ljósgjald		     125.00

kr. 5.915.00

Var formanni nefndarinnar falið að birta hreppsnefndinni gjaldaáætlun þessa til samþykktar.

Fleira fjell ekki fyrir fundinn. Fundi slitið.

Árni Filippusson Jes A. Gíslason Brynj. Sigfússon Gunnar Ólafsson


Sjá samninga bls. 192


Brjef.

                                                                                                Ásgarði 21. nóvember 1916.

Í nafni skólanefndarinnar í Vestmanneyja skólahjeraði varð ég hér með að tjá hinni heiðruðu hreppsnefnd í Vestmannaeyjahreppi, að þegar skólanefndin hinn 19. þ. m. samdi og afgreiddi til hreppsnefndarinnar áætlun um kostnað við skólahald héraðsins á yfirstandandi skólaári, hefur því miður gleymst einn gjaldaliður, semsje borgun til hr. Brynjólfs Sigfússonar fyrir söngkennslu í skólanum. Sú borgun er og hefur verið greidd eftir tímatali og áætlast nú 85 krónur, sem því þarf að bæta við áður áætlaða upphæð kr. 5.915.00. Áætlaður kostnaður við skólahaldið yfirstandandi skólaár verður því alls kr. 6.000.00

Virðingarfyllst Árni Filippusson p. t. formaður skólanefndarinnar.


Til

      hreppsnefndarinnar í Vestmannaeyjum








Fimmtudaginn 15. mars 1917 átti skólanefndin í Vestmannaeyjum fund með sjer að Ásgarði.

 Allir nefndarmenn mættu.
  Tilefni fundarins var að svara spurningum frá umsjónarmanni fræðslumálanna um tekjur barnakennaranna við barnaskólann í Vestmannaeyjum árið 1916, sem síðan yrði byggður á útreikningur á dýrtíðaruppbót barnakennaranna, samkv. þingsályktun Alþingis 1917.
  Spurningunum var svarað af nefndinni eftir bestu vitund og launin fyrir 5/6 skólatímabilsins, að undanteknum launum söngkennara og leikfimiskennara, sem miðuð voru við heilt skólatímabil (1915/16 ) gefin upp á þennan hátt:  Björn H. Jónsson 1100 kr. og auk þess hlunnindi: 200 kr. húsaleigustyrkur, Ágúst Árnason:700 kr., Eiríkur Hjálmarsson: 625 kr., Guðjón Guðjónsson: 450 kr., Jónína Þórhallsdóttir 350 kr., Guðný Jónsdóttir:208 kr. 33 a, Brynjólfur Sigfússon ca 70 kr., Bjarni Björnsson 24 kr. 

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Jes. A. Gíslason Brynj. Sigfússon Sveinn P. Scheving


Sjá hinumegin.






Eftirrit. Skýrsla Um tekjur barnakennara við barnaskólann í Vestmannaeyjum árið 1916, sem á að leggja til grundvallar fyrir útreikningi á dýrtíðaruppbót barnakennara samkvæmt þingsályktun alþingis 1917. Spurningar Svör 1. Hver var kennari, eða hverjir voru kennarar almanaksárið 1916? 1. Björn H. Jónsson 2. Ágúst Árnason 3. Eíríkur Hjálmarsson 4. Guðjón Guðjónsson 5. Jónína Þórhallsdóttir 6. Guðný Jónsdóttir 7. Brynjólfur Sigfússon (söngkennari) 8. Bjarni Björnsson (leikfimikennari) 2. Hve margar vikur kenndi hann, eða þeir, hver um sig á almanaksárinu 1916 ? Nr. 1, 2, 3, kenndu 5 mánuði hver

 „   4 og 5 kenndu 3 mánuði hver
 „   6 kenndi 2 mánuði 
 „   7 og 8 höfðu tímakennslu 
 

3. Hve mikið kaup hafði hver kennari í peningum sama ár? Nr. 1: kr. 1100.00, Nr. 2: kr. 700.00, Nr. 3:kr. 625.00, Nr. 4: kr. 450.00, Nr. 5: kr. 350.00, Nr. 6: kr. 208.33, Nr. 7: kr. 70.00, Nr. 8: kr. 24.00 4. Hafði hann, eða þeir, nokkur hlunnindi auk kaups í peningum og hve mikið eru þau hlunnindi metin til peninga? Nr. 1, hafði að hlunnindum, auk kaups í peningum, skólaárið 1916/17 húsaleigustyrk kr. 200.00, aðrir engin hlunnindi. 5. Hefir kennaranum, eða kennurunum verið veitt dýrtíðaruppbót fyrir árið 1916, og ef svo er, hve mikið hverjum kennara? Dýrtíðaruppbót ekki veitt, en lítilsháttar launahækkun

Athugasemdir: 1. Að undanförnu hefir skólinn verið settur í byrjun septembermánaðar og haldinn til loka febrúarmánaðar, þ. e. 6 mánuðir, en næstl. ár var sú breyting gerð á skólahaldinu að hann skyldi byrja 1. október og haldast til loka marsmánaðar. Þess vegna verður skólahald á almanaksárinu 1916 ekki nema 5 mánuðir þótt skólatíminn sé nú 6 mánuðir, eins og áður. Svarið við 3ju spurningunni er því miðað við 2/6 af skólatímabilinu 1915/16 og 3/6 skólatímabilsins 1916/17, þ. e. 5/6 heils skólatímabils. 2. Guðný Jónsdóttir og Bjarni Björnsson kenndu hér skólaárið 1915/16, en Guðjón Guðjónsson og Jónína Þórhallsdóttir byrjuðu kennslu hér í byrjun yfirstandandi skólaárs, hinir þeir sömu bæði skólaárin. Vestmannaeyjum 15. mars 1917. Árni Filippusson Jes A. Gíslason Brynj. Sigfússon Sveinn P. Scheving Gunnar Ólafsson Ár 1917, þriðjudaginn 22. maí, var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Allir skólanefndarmennirnir mættu.

  Efni fundarins var að ræða um væntanlegt skólahald næsta skólaár 1917-´18 og hvað gera skuli, ef til þess kæmi að enginn skóli yrði haldinn gagnvart hinum ráðnu kennurum skólans.
  Umræður skólanefndarinnar snérust aðallega um það að reyna ef kleift væri, að hafa lítilsháttar kennslu í nýja skólanum fyrir 70-80 börn, sem skipt yrði í 2 flokka og nyti hvor flokkurinn kennslu annanhvern dag.
  Að sagt yrði upp í tæka tíð öllum kennurum skólans en þrem eða fjórum sem yrði gefinn kostur á að taka ½ kennslulaun hvort sem kennslan yrði nokkur eða engin. 
Þegar hjer var komið, var hreppsnefndin mætt á fundi með skólanefndinni til þess sameiginlega að taka ákvarðarnir um málefni það, sem fyrir fundinum lá.  Eftir nokkrar umræður, var borin upp svolátandi tillaga:
  Fundurinn áleit, að heppilegt væri, ef þess yrði kostur, að hafa lítilsháttar kennslu í nýja skólahúsinu næsta skólaár 1917/18 fyrir 70 til 80 börn, sem skipt yrði í tvo flokka og nyti hvor flokkurinn kennslu annanhvorn dag, þó skal öllum kennurum skólans sagt upp kennslustarfinu við skólann í tæka tíð, en þeim Birni H. Jónssyni, Eiríki Hjálmarssyni og Ágústi Árnasyni yrði gefinn kostur á að taka ½ kennslulaun fyrir skólaárið, hvort sem kennslan verður nokkur eða engin næsta skólaár 1917/18, ætlast er til þess, að hinir þrír tilnefndu kennarar, annist kennslu þá, sem fram kynni að fara og að hið áskilda kaup fái kennararnir ekki, ef þeir víkja burtu búferlum úr skólahjeraðinu.

Fleira fjell ekki fyrir fundinn. Fundi slitið.

Árni Filippusson Jes. A. Gíslason Sveinn P. Scheving Brynj. Sigfússon Högni Sigurðsson Kristján Ingimundsson Símon Egilsson Jón Guðmundsson






Ár 1917, hinn 23. júní átti skólanefnd Vestmannaeyja fund með sjer að Ásgarði.

Aðeins 3 nefndarmenn mættu.
  Þá var lagður fram reikningur yfir tekjur og gjöld barnaskóla skólahjeraðsins skólaárið 1916/17 með 19 fylgiskjölum.  Var reikningurinn athugaður samþykktur og undirskrifaður.  Einnig voru lagðar fram, yfirskoðaðar og undirskrifaðar fyrirskipaðar skýrslur skólans.
  Formanni skólanefndarinnar var falið að afgreiða til yfirstjórnar fræðslumálanna reikninginn og skýrslurnar og sækja um leið um að skólahjeraðinu veitist hluttaka í landssjóðsstyrknum til barnafræðslu svo framarlega sem skólahald verður mögulegt vegna kolaleysis.  Einnig að koma á framfæri til skólanefndarinnar um það að annaðhvort gjöri stjórnarráð Ísland ráðstafanir til þess að hér verði fáanleg kol til notkunar við skólahald, eða þá veiti undanþágu frá skólahaldi skólaárið 1917-1918 (ef kol verða ófáanleg vegna heimsstyrjaldarinnar).

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið

Árni Filippusson Brynj. Sigfússon Sveinn P. Scheving