Eyvindur Þórarinsson hafnsögumaður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júní 2006 kl. 19:45 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júní 2006 kl. 19:45 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Eyvindur Þórarinsson fæddist 13. apríl 1892 að Fossi í Mýrdal. Eyvindur fluttist með foreldrum sínum, Þórarni Árnasyni og Elínu Pálsdóttur, til Vestmannaeyja árið 1908. Þá hóf hann sjómennsku á Hansínu, síðar á Austra og þá á Gideon þar sem hann var formaður til ársins 1920. Eftir það var Eyvindur með ýmsa báta svo sem Þorgeir Goða og Snyg til ársloka 1928. Eftir að Eyvindur hætti formennsku var hann hafnarsögumaður í nokkur ár og síðar húsvörður Útvegsbankans í Eyjum.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.