Guðmundur Tómasson (Bergstöðum)
Guðmundur Tómasson, Bergstöðum, fæddist í Landeyjum þann 24. júní 1886. Guðmundur byrjaði ungur sjómennsku og var á fyrstu mótorbátunum eins og á Ingólfi með Guðjóni Jónssyni á Sandfelli og fleiri bátum. Formennsku byrjaði Guðmundur árið 1912 á Víking. Siðan tók hann við Marz og var með hann til ársins 1921. Eftir það var Guðmundur með hina ýmsu báta næstu áratugina á eftir.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.