Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2004/ Minning látinna

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2017 kl. 08:47 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2017 kl. 08:47 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
MINNING LÁTINNA



Andrés Hannesson
F. 1. júní 1924 - D. 20. október 2003
Andrés Hannesson, fæddur í Eyvakoti á Eyrarbakka 1. júní 1924, dáinn 20. október 2003 Foreldrar: Jóhanna Bernharðsdóttir, fædd að Keldnakoti í Stokkseyrarhreppi l.október 1896, dáin 27. september 1970 og Hannes Andrésson, fæddur á Skúmsstöðum á Eyrarbakka 22. september 1892, dáinn 1. mars 1972. Þau voru gefin saman af séra Gísla Skúlasyni hinn 1. nóvember 1919. Systkini Andrésar eru: Gunnlaug f. 17.9.1920, Guðrún Fanney f. 2. 3. 1922, Bernharður f. 6. 11. 1925, Jórunn Ásta f. 3. 4. 1928, Hannes f. 5. 11. 1930, Haraldur Ármann f. 1.1 1932, Svanlaug f. 20.4. 1933, d. 31.1 2003, og Garðar f. 18.2. 1935.
Andrés hóf sjómennsku 14 ára frá Þorlákshöfn. Fór á vetrarvertíð til Vestmannaeyja 1942 og ílentist þar. Kvæntist Guðleifu Vigfúsdóttur frá Holti í Vestmannaeyjum 31. 12. 1947 en höfðu búið hjá Valgerði móður hennar frá vordögum 1944. Þau byggðu sér myndarlegt hús að Birkihlíð 3 í Eyjum og fluttu í það fyrir jólin 1947 og áttu heima þar til 1965 að þau flytja til Reykjavíkur. Synir þeirra eru: Vigfús Valur f. 20.2 1945 og Hannes f. 29. 11. 1946. Hannes fórst með vélbátnum Þráni 5. 11. 1968. Börn Vigfúsar Vals eru: Andrea Heidi, Hanna og Magnús Helgi. Andrés undi sér ekki í höfuðborgarglaumnum og byggðu þau sér einbýlishús að Setbergi 15 í Þorlákshöfn sem þau fluttu í 1971 og þar bjó hann til dauðadags. Meðan þau áttu heima í Reykjavík stundaði Andrés sjóinn frá Þorlákshöfn og eftir það. Hann hafði öðlast vélstjórnarréttindi árið 1945 og tók síðar svokallað pungapróf skipstjórnarmanna. Hann var einstakt snyrtimenni. Vélarrúmin hans þóttu bera af fyrir snyrtimennsku eins og annað sem hann kom nálægt. Í Eyjum var hann vélstjóri lengst af hjá góðum, aflasælum skipstjórum. Árið 1955 lét hann smíða fyrir sig, á Siglufirði, 6 tonna trillu. sem hét Valur VE 279, eins og aðrir bátar hans sem á eftir komu en þeir urðu 4. Á langri viðburðaríkri sjómannsævi lenti hann tvisvar í þeirri miklu lífsreynslu að bátar, sem hann var á, sukku skyndilega. Annar, Valur 29 tonn, var keyrður niður 10. mars 1965. Var það síðast báturinn hans. Hinn var Gautur AR í ágúst 1977. Mannbjörg varð í báðum þessum sjósköðum. Andrés var mjög aflasæll formaður þó vetrarvertíðin 1958 standi þar upp úr en þá fiskaði hann 699 tonn af slægðum fiski á 15 tonna bát og það á handfæri. Þegar hann kom í land eftir 46 ára sjómennsku, gerðist hann hafnarvörður og starfsmaður á hafnarvoginni í Landshöfninni í Þorlákshöfn og vann við það til loka starfsævinnar. Andrés var sæmdur heiðursmerki Sjómanna-agsráðs Þorlákshafnar á sjómannadaginn 1989.

Haraldur Hannesson.


Bergur Elías Guðjónsson, útgerðarmaður
F. 10. júní 1913 - D. 7. júní 2003.
Elli Bergur, eins og hann var alltaf kallaður, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 7. júní 2003 en hann fæddist í Vestmannaeyjum 10. júní 1913.
Foreldrar Ella voru Margrét Símonardóttir, f. 1891 d. 1920 og Guðjón P. Valdason, f. 1893 d. 1989. Seinni kona Guðjóns og fóstra Ella var Guðbjörg Þorsteinsdóttir, f. 1895 d. 1991. Alsystur hans voru Ragnhildur og Klara sem báðar eru látnar. Hálfsystkini hans eru Þorsteinn og Bergrós sem létust ung og Marteinn og Ósk sem lifa bróður sinn. Elli kvæntist 15. maí 1937 Guðrúnu Ágústsdóttur frá Hróarsholti í Flóa, f. 29.01.1916. Börn þeirra eru: 1. Ágúst f. 19.09.1937, kvæntur Stefaníu Guðmundsdóttur, f. 16.01.1941. Börn þeirra eru Bergur Elías og Sigurbjörg. 2. Margrét Klara, f. 13.08.1941, gift Birgi Símonarsyni, f. 16.09.1940 og þeirra börn eru Elva Björk. Jóhanna og Rúnar Þór. 3. Kristín, f. 08.12.1945, gift Kristmanni Karlssyni f. 06.06.1945 og heita börn þeirra Guðrún, Betsý og Elísa.
Elli Bergur hóf ungur sjómennsku með föður sínum á Skíðblani en vegna sjóveiki fór hann fljótt í land. Þegar Guðjón varð skipstjóri á Kap VE 272 hjá Kjartani Guðmundssyni útgerðarmanni og ljósmyndara, sá Elli Bergur um útgerðina. Aflinn var unninn í salt í Geirseyri sem Kjartan átti. Ásamt þeirri vinnu sá Elli Bergur um öll veiðarfæri og beitningu á línuvertíðinni. Árið 1951 keyptu þeir feðgar, Guðjón og Elli Bergur ásamt Magnúsi Bergssyni, bát og hús og Elli Bergur hélt áfram að sjá um verkun aflans og veiðarfærin. Árið 1955 fengu þeir félagar nýsmíðaða Kap VE 272, 52 tonn, frá Danmörku og sú gamla var seld. Þessa nýju Kap áttu þeir í 10 ár. Árið 1964 keyptu þeir 100 tonna stálbát, Halkion, sem fékk nafnið Kap II VE 4 og áttu hana til 1971. Þá hættu þeir feðgarnir útgerð nema óbeint í gegnum Ísfélagið. Eftir að Guðjón hætti skipstjórn 1961, tók Ágúst, sonur Ella Bergs, við af afa sínum og var hjá þeim þar til þeir hættu. Magnús Bergsson var einnig útgerðarmaður Bergs VE 44 ásamt Kristni Pálssyni skipstjóra, tengdasyni sínum. Saman byggðu þessar útgerðir nýja Geirseyri ofan við Básaskersbryggjuna, stórt og myndarlegt hús. Í nokkur ár sameinaðist útgerð þeirra félaga útgerð Tómasar Guðjónssonar í Höfn um verkun afla báta þeirra og var Elli Bergur verkstjórinn. Þegar nokkrar útgerðir, m.a. þessar tvær, eignuðust Ísfélagið árið 1957, varð Elli Bergur verkstjóri þar í saltfiskinum og hætti ekki fyrr en hann varð 76 ára.
Kynni mín af honum voru fyrst er ég, strákur, kom reglulega með föður mínum niður á Gömlu-Geirseyri þar sem Elli var við afskurð neta. Hann sá um afskurð af Kap og Berg á þessum árum ásamt því að beita og hafa eftirlit með beitningunni. Þar var fróðlegt spjall um sjóinn og einnig spurði hann frétta: „Hvernig gengur í Reykjavíkinni, heldur þú að þetta nám gagnist þér við að færa bókhaldið fyrir Kap Ve.“ Hjá honum var alltaf stutt í gamansemina og stríðnina og alltaf var talað tæpitungulaust um hlutina. Sem hluthafi í Ísfélaginu var hann alltaf útgerðarmaður. Elli var elsti hluthafi Ísfélagsins þegar hann lést en hann kom inn sem hluthafi og útgerðarmaður á Kap Ve auk þess sem hann var starfsmaður Ísfélagsins um árabil. Elli var mikil Ísfélagsmaður og fylgdist vel með því sem var að gerast í Ísfélaginu.
Elli Bergur var maður sem setti svip sinn á samfélagið og er sárt saknað.
Fjölskyldu Ella Bergs votta ég samúð við fráfall mikils sómamanns og vinar.

Magnús Kristinsson


Garðar Sigurðsson
F. 20. nóv. 1933 - D. 19. mars 2004.
Garðar Sigurðsson, stýrimaður, síðar alþingismaður, var fæddur í Reykjavík 20. nóv. 1933. Foreldrar hans voru Klara Tryggvadóttir og eiginmaður hennar, Sigurður Hjálmarsson bifreiðasmiður. Garðar fluttist barn að aldri með móður sinni til Vestmannaeyja og ólst upp með henni og síðari manni hennar, Hallgrími Júlíussyni skipstjóra, sem hann leit á og taldi föður sinn. Hallgrímur, sem var ættaður úr Bolungarvík, fórst í Helgaslysinu við Faxasker í ársbyrjun 1950 og má nærri geta hvílíkt áfall sá hörmulegi atburður hefur verið Garðari sem þá var uppi á landi fyrsta vetur sinn í menntaskóla.
Garðari gekk vel við nám, var bráðskarpur og duglegur eins og fleiri systkini hans. Hann fór fyrst með félaga sínum og jafnaldra, Eyjólfi Pálssyni, í menntaskólann á Laugarvatni, en lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann innritaðist í verkfræði í Háskóla Íslands, en hætti eftir tvö ár, þá orðinn fjölskyldumaður. Fjárhagurinn var þröngur og Garðar fór til sjós. Hann kenndi svo við Gagnfræðaskólann á Neskaupstað 1957-1960 og eftir það við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum 1961-1962 og 1963-1971. Hann var settur skólastjóri hans veturinn 1969-1970 í leyfi Eyjólfs Pálssonar.
Garðar var ungur þegar hann fór fyrst til sjós. Það var á Helga með Hallgrími, sumarúthald og hann 14 eða 15 ára. Hann var öll sumur, meðan hann var í skóla, á sjó. Á Guðrúnu var hann 1950 með Óskari Eyjólfssyni sem sagði um Garðar að hann hefði verið „frískur og duglegur“. Tvö sumur var hann með Sigurbirni Sigfinnssyni („Bubba“, föðurbróður Bergþóru), 1951 á Veigu og 1952 á Hugrúnu. Hann var svo tvær vertíðir í Eyjum, 1961 og 1963, m.a. með Helga Bergvinssyni á Stíganda, og á ýmsum bátum yfir sumar eða í afleysingum, t.d. með Þórði Rafn á Jóni Stefánssyni, á Frá með Oskari Þórarinssyni, á Gullbergi með Guðjóni Pálssyni, Mars með Grétari Skaftasyni, Hringver og Kóp, Ófeigi, Vestmannaey o.fl. Meðan hann var í háskólanum fór hann í leyfum túra á togurum, m.a. oft á Karlsefni með Halldóri Ingimarssyni, líka á Keflvíkingi með Ásmundi Friðrikssyni. Öllum ber saman um að Garðar hafi verið harðduglegur sjómaður og góður vinnufélagi; vildi helst aldrei tala um pólitík úti á sjó! Ef stund var milli stríða þá spilaði hann (bridge) eða tefldi skák, stundum blindskák.
Garðar lauk stýrimannaprófi utan skóla í Reykjavík árið 1962 og var eftir það jafnan stýrimaður á þeim bátum sem hann var á.
Garðar varð ungur róttækur í skoðunum, harður sósíalisti. Hann hafði þó ekki bein afskipti af stjórnmálum fyrr en hann var kjörinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja árið 1966 fyrir Alþýðubandalagið með Sigurði Stefánssyni þegar meiri hluti sjálfstæðismanna féll eftir langt stjórnartímabil. Eftir fráfall Sigurðar árið eftir varð Garðar forustumaður Alþýðubandalagsins. Hann gat jafnan treyst á fylgi margra sjómanna og æskufólks sem hann hafði kennt, auk annarra sem að jafnaði studdu flokkinn. Þeim gekk vel, Garðari og Hafsteini Stefánssyni, í bæjarstjórnarkosningunum 1970 og urðu stærsti flokkurinn í meirihlutasamstarfi vinstri manna, en 1974 var hann á sameiginlegum lista með framsóknarmönnum; gekk þá verr og meirihlutasamstarfið slitnaði eftir árið.Mjög dró þá úr afskiptum Garðars af bæjarmálum á vettvangi bæjarstjórnar en hann sótti þó einstaka fundi eftir því sem við var komið út kjörtímabilið, til 1978. Alls sat hann 72 bæjarstjórnarfundi, og á árunum 1968-1978 sat hann 124 bæjarráðsfundi.
Við alþingiskosningarnar í júní 1971 var Garðar í 1. sæti á lista Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi og hlaut glæsilega kosningu þótt fyrri forustumaður Alþýðubandalagsins til margra ára, Karl Guðjónsson, væri í framboði fyrir Alþýðuflokkinn í þessum kosningum. Garðar sat samfellt á þingi 1971-1987. Hann naut álits á Alþingi fyrir þekkingu sína og reynslu af sjávarútvegsmálum og lét sig þau mestu skipta á þingi. Hann þótti öflugur talsmaður síns flokks en var þó sjálfstæður í málflutningi, snjall ræðumaður, og orðheppinn.
Erfiðasta viðfangsefni Garðars, meðan hann var alþingismaður og bæjarfulltrúi, hefur efalaust verði eldgosið 1973 og afleiðingar þess. Hann sat í fyrstu stjórn Viðlagasjóðs sem átti að bæta það tjón sem varð á eignum Vestmanneyinga og til að hefja uppbyggingu að nýju. Margt varð líka mótdrægt, átök innan flokks hans, bæði á þingi og í kjördæminu, erfiðleikar Útvegsbankans þar sem hann var í bankaráði og svo þrálát veikindi hans sjálfs í baki. Allt stuðlaði þetta að því að hann hætti þingmennsku 1987. Hann fór þá á ný á sjó, var hjá veiðieftirliti sjávarútvegsráðuneytisins, en fór í land eftir þrjú ár og varð síðar starfsmaður Landsbanka Íslands, við birgðaeftirlit. Þar vann hann þar til hann lét af störfum sökum heilsubrests, aðeins sextugur að aldri. Sjúkdómur hans var sérstaklega þungbær, lamaði hægt og sígandi líkamlega og sálarlega krafta hans uns hann lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík 19. mars sl.
Garðar eignaðist tvö börn með fyrri konu sinni. Um 1960 kynntist hann Bergþóru Óskarsdóttur á Neskaupstað. Þau giftu sig 1962 og eignuðust fjórar dætur. Bergþóra á ættir að rekja til Eyja. Faðir hennar var Óskar Sigfinnsson, harðduglegur, heppinn og fiskinn sjómaður, en hann var fæddur í Eyjum, sonur Júlíu í Dvergasteini og fyrri manns hennar sem fórst ungur með mótorbátnum Víkingi. Óskar fór þá austur á land í fóstur. Garðar og Bergþóra bjuggu í Eyjum þangað til hann var kjörinn á þing, fyrst á Faxastíg 33, í sambýli við móður hans, en þau byggðu sér svo hús við Hrauntún 3 sem Garðar teiknaði sjálfur. Bergþóra reyndist Garðari frábærlega vel í langvinnum veikindum hans síðustu ár.
Það var alltaf líf og fjör í kringum Garðar Sigurðsson meðan hann hélt heilsu. Hann var spaugsamur, mikil eftirherma og æringi. Hann gat verið nokkuð óvæginn við pólitíska andstæðinga sína í ræðu og riti en þeim ber saman um að hann hafi verið drengur góður þegar á reyndi, réttsýnn og heiðarlegur.
Við, sem yngri erum, munum Garðar fyrst og fremst sem kennara, góðan kennara, hressilegan og skemmtilegan, hjálpsaman, en hann var ekkert að vanda okkur kveðjurnar þegar þurfti að siða okkur til. Við bárum mikla virðingu fyrir honum, gáfum hans, snerpu og víðtækum fróðleik. Hann var glæsilegur á velli, friður og hraustur, a.m.k. var hann hraustlegur að sjá. Við tókum marga snerruna í tímum um heimsmálin og mál heimabyggðarinnar. Ekki var skafið utan af hlutunum en allt var það í góðu og er ákaflega skemmtilegt í minningunni.

Helgi Bernódusson.


Hannes Tómasson
F. 17. júní 1913 - D. 14. október 2003
Hannes Guðjón Tómasson fæddist á Miðhúsum í Vestmannaeyjum 17. júní 1913 en var ætíð kenndur við Höfn. Hann lést á Elliheimilinu Grund 14. október 2003. Foreldrar hans voru Tómas Maríus Guðjónsson f. 13. 1. 1887, d. 14.6. 1958, útgerðarmaður, og kona hans Hjörtrós Hannesdóttir frá Miðhúsum f. 20.2. 1888, d. 26.3 1926. Seinni kona Tómasar var Sigríður Magnúsdóttir f. 4. 10. 1899, d. 18.9. 1968. Albræður Hannesar eru Martin f. 17. 6. 1915, d. 1. 1. 1976 og Jóhannes f. 13. 3. 1921. Hálfsystkini Hannesar eru Guðjón f. 29. 9. 1925, d. 2. 12. 1977, Magnea Rósa, f. 20. 9. 1928, Gerður Erla f. 21. 2. 1933 og Bragi f. 4. 3. 1939, d. 2. 8. 2002.
H. 31. ágúst 1944 kvæntist Hannes Kristínu Jónsdóttur f. 3. apríl. 1919, frá Hraungerði á Hellissandi. Hún lést á Landspítalanum víð Hringbraut 14. júni 2002. Foreldrar hennar voru Jón Valdimar Jóhannesson sjómaður f. 21.9. 1873, d. 15.6. 1959 og Hildur Sigurðardóttir f. 14. 4. 1895, d. 24. 2. 1962, bæði frá Hellissandi. Hannes og Kristín eignuðust 2 syni 1) Sverrir skipstjóri f. 13. 8. 1944, starfar nú sem flutningastjóri hjá Samskipum, kvæntur Helgu Vallý Björgvinsdóttur f. 20. 9. 1945 og eiga þau 2 börn, Hannes verkfræðing og Sigurlaugu flugfreyju, maki hennar er Halldór Hafsteinsson viðskiptafræðingur, 2) Tómas vinnur hjá Þrótti.
Sjómennskan var Hannesi í blóð borin, móðurafi hans var Hannes lóðs í Vestmannaeyjum. Var Hannes fyrst í siglingum á norsku skipi, Bisp, frá Haugasundi í 3 ár, þar til síðari heimstyrjöldin braust út. Þá fór hann í Stýrimannaskólann í Reykjavík. Að því loknu varð hann stýrimaður á Kötlu. Einnig leysti hann af á Sæfellinu í Vestmannaeyjum og á Vatnajökli. Lengst af starfaði Hannes sem stýrimaður og síðar skipstjóri á skipum Sambandsins. Árið 1962 kom Hannes í land og fór að vinna hjá Skeljungi við að lesta og losa olíuskip. Vann hann þar síðan við hin ýmsu störf .þar til hann hætti árið 1999, 86 ára.
Þetta allt varstu vinur búinn að afreka þegar okkar kynni hófust. Langar mig að bæta fáeinum línum við þennan formála Hannes minn. Hér kveð ég kæran vin til margra ára. Það var kvöld, síminn hringdi, Eddi Malla var á línunni og tilkynnti að Hannes vinur minn hefði fengið heilablóðfall þá um daginn og útlitið ekki gott. Tveimur tímum síðar var hringt, það var Eddi að tilkynna mér lát vinar míns. Þarna var mínum rétt lýst. Málið klárað. Það var nú svo, að ég beið eftir símtali þetta kvöld. Beið eftir andlátsfregn af föður mínum blessuðum, sem kom klukkan 4 um nóttina. Það að þú hefðir kvatt var einhvern veginn ekki inni í myndinni. Talaði við þig nokkrum dögum áður og þú varst hress og ánægður með Eyjaferðina. Talað var um að hittast um næstu mánaðamót. Ég yrði þá á ferðinni og þú hafðir orð á því að það væri enn til wisky frá níræðisafmælinu. Því miður verður ekki af þessu spjalli, það bíður betri tíma. Við hittumst fyrst á aðalfundi Ísfélags Vestmannaeyja, þú hluthafi, ég skipstjóri á Bergey, árið 1984. Boðið var upp á mat og drykk, og lentum við hvor á móti öðrum við langborð. Fjörið var svo mikið hjá okkur að hinn endinn var allur kominn á okkar enda eins og þú orðaðir það. Þá ákváðum við að þú kæmir með okkur í næstu veiðiferð og þa hófst vinátta sem stóð fram á síðasta dag. Það leið ekki vika án þess að við töluðum saman í síma og oftar en ekki þrisvar til fjórum sinnum sömu vikuna. Þú þurftir að fylgjast með öllu og vita gang mála. Hvar við værum og hvort einhver afli væri. Eg skráði þig fyrst á sjó hjá mér í júní 1984 og síðan á hverju ári eftir það, fyrst á Bergey, síðan Jón Vídalín til 2001. Það ár komst þú tvisvar, í júní og ágúst 88 ára gamall. Það slær enginn út. Það var líf og fjör þegar þú mættir. Aldrei nein lognmolla. Það var spilað og sagðar sögur úr siglingunum. Stundum kom sérstakt bros og þá grunaði menn að farið væri að krydda en allt var það í léttum húmor, sem fylgdi þér alltaf. Lífsgleðin skein af þér. Það var aldrei neitt vol. Lífið var til þess að lifa því sagðir þú.
Já, Hannes minn, þær voru skemmtilegar veiðiferðirnar og margs að minnast og af mörgu að taka ef tína ætti til. T.d. þegar við á Bergey vorum á Reykjanesgrunni og síminn hringdi. Þú svaraðir, spurt var eftir mér, þú sagðir að ég væri upptekinn við að veiða lax, og það sem var verra, vélstjórinn væri frammi á bakka að skjóta rjúpur. Þá var hlegið.
Það var Hannesi mikið áfall þegar Kristín kona hans, lést skyndilega fyrir rúmu ári og hélt ég um tíma að Hannes myndi ekki ná sér á strik aftur en svo fór nú samt. Þegar hann komst á Elliheimilið Grund voru honum allir vegir færir. „Eins og 5 stjörnu hótel“, sagði vinurinn sáttur við sig.
Ég og hún Kolla mín þökkum þér vinur, samveruna, símtölin sem voru ófá þessi ár. Eg veit að þér hefur verið vel tekið við hliðið og ég tel víst að þú hafir skotið einhverju að Lykla-Pétri ef ég þekki þig rétt en frétti af því seinna.
Kæri vinur, Guð geymi þig, og hafðu þökk fyrir allt.

Sverrir og Kolla.


Ágúst Ólafson frá Gíslholti
F. 1. ágúst 1927 - D. 29. júlí 2003
Ágúst Ólafson fæddist l. ágúst 1927. Hann lést þann 29. júlí sl. á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Gústi var sonur þeirra hjóna Ólafs Vigfússonar og Kristínar Jónsdóttur frá Gíslholti. Systkini hans voru Vigfús (látinn), Kristný, Jóna (látin), Sigríður og Guðjón. Einnig ólst upp með honum sonur Jónu, Jón Olafur.
Eftirlifandi eiginkona hans er Nanna Guðjónsdóttir. Börn þeirra eru Jóhann Grétar, Jóna Kristín, Ágústa Salbjörg, Jenný, Ólafur Gísli, og Jón Eysteinn. Eignuðust þau alls 17 barnabörn og 7 barnabarnabörn.
Gústi stundaði sjóinn sem ungur maður. Hann byrjaði að beita á Skúla Fógeta VE 16 ára gamall, réri síðan vetrarvertíðina á Skúla með pabba sínum Óla Fúsa frá Gíslholti og síðan með Markúsi á Ármóti á sama báti. Einnig var hann á Hilmi VE með Eyva á Bessa og síðar á Eyjaberginu með Jóni Guðjónssyni þar sem hann var annar vélstjóri . Var á þeim árum oft fiskað í og siglt til Englands eða Þýskalands. Í einni siglingunni varð Gústi fyrir því óláni að falla af bryggjunni niður á dekk og slasaðist hann töluvert, braut á sér hnéskelina á öðrum fæti og átti hann í þeim meiðslum nánast það sem eftir var.
Varð Gústi eftir þetta að hætta til sjós og snéri sér að smíðavinnu í landi. Lærði hann húsasmíði og vann við uppbyggingu margra húsa hér í bænum. Gústi var liðtækur smiður. Ég man eftir því þegar við strákarnir fórum á Austurveginn að hitta Gústa til að biðja hann um að smíða handa okkur boga og örvar. Hann var mjög barngóður maður hann Gústi og því boðinn og búinn til að hjálpa okkur við bogasmíðina. Smíðaði hann bogana úr eik og örvarnar líka. Man ég eftir einum boganum sem hann smíðaði fyrir Óla bróður minn, hann var mikil listasmíð. Þegar Gústi prófaði bogann á veröndinni á Austurveginum, skaut hann örinni lang leiðina niður að Þurrkhúsi sem var niðri á Urðum. Þeir, sem muna eftir staðháttum fyrir gos, gera sér kannski grein fyrir fjarlægðinni. Við bræðurnir vorum öfundaðir af vinunum vegna boganna frá Gústa.
Gústi var á þessum tíma með smíðaverkstæði í kjallaranum á Austurveginum og man ég eftir stýrishúsinu á Barðann VE 319 sem hann smíðaði fyrir afa.
Eins og fram hefur komið, var hann Gústi afar barngóður maður, það var fastur liður þegar við vorum litlir peyjarnir að þegar lundapysjutíminn rann upp, var Gústi alltaf tilbúinn að fara á veiðar með okkur krökkunum. Þegar skyggja tók, hélt hersingin af stað og auðvitað labbandi eins og ávallt í þá daga. Voru það við frændurnir ásamt Laufásfrændum og fleiri krökkum sem héldu niður á bryggju í pysjuleit. Ég man að Gústi var alltaf með gamla íþróttatösku í hendinni sem hann lét pysjurnar í en við kxakkarnir með kassa. Gústi passaði alltaf upp á það að yngstu krakkarnir hans sem ekki voru með okkur, fengju sínar pysjur. Við krakkarnir furðuðum okkur oft á því hvers konar sjón Gústi væri með því hann var alltaf fyrstur til að koma auga á pysjurnar.
Gústi festi síðar kaup á trillu, frambyggðri c.a. 4-5 tonn að stærð sem hann skýrði Rán VE. og var hann eftir það oft kenndur við hana. Gústi var til margra ára sókningsmaður í úteyjar á Ráninni. Hann þekkti úteyjarlífið vel og vissi að það þurfti að þjónusta þá sem voru úti í eyju. Hann hafði ásamt kunningjum sínum Gunnari Stefánssyni, Bárði Auðunssyni og Skúla Theodórssyni byggt veiðikofa í Suðurey á þeim stað sem núverandi kofi stendur. Eftir að Gústi meiddist á hné hætti hann að stunda úteyjarlífið en snéri sér að þjónusta eyjarnar.
Þær voru margar svaðilfarirnar sem Gústi fór í eyjarnar. Kynntist ég þeim eftir að ég hóf að stunda veiðar í Suðurey. Ekki var nú Ránin alltaf í stakasta lagi en það skipti ekki öllu því ef Gústi var búinn að ákveða að koma út að sækja þá kom hann út . Einhverju sinni kom Gústi í Suðurey að sækja menn og fugl og þá einu sinni sem oftar einn um borð. Þegar við létum fuglinn síga, tókum við eftir því að Gústi raðaði pokunum á allt dekkið en setti þá ekki í hrúgu aftast eins og hann var vanur. Þegar því lauk hélt hann austur fyrir eyju til að sækja okkur og skyldi farið niður að austan þar sem vestanátt var og því ófært á hefðbundna steðjanum. Þegar við komum niður að steðja, sáum við hvar Gústi hringsólaði alltaf framhjá okkur og kallaði eitthvað um leið. Skildum vil loks hvað hann var að segja. Hann var að segja að bakkið væri bilað og við yrðum því að stökka þegar hann sigldi fram hjá steðjanum. Þar kom skýringin á hvers vegna hann hafði raðað pokunum um allt dekk. Við urðum bara að láta vaða þegar hann færi fram hjá. Svona var Gústi. þetta var ekki svo nauið hjá honum. Gústi átti það til æsa sig ef menn voru ekki nógu snöggir að stökkva upp á steðjann á réttu lagi. Eitt sinn er Gústi var að koma manni í land í Suðurey, manni sem var ávallt frekar ragur við steðjann þegar urgaði vel á honum og hafði ekki þorað að stökkva í tvígang og Gústi því þurft að gera 3. tilraun og farið að fjúka í hann. Þegar hann var að nálgast steðjann öskraði hann út um gluggann: „Stökktu maður stökktu“, og manngreyið varð skíthrætt við Gústa og stökk en beint í sjóinn því rúðurnar í Ráninni voru orðnar dálítið mattar þannig að Gústi misreiknaði fjarlægðina.
Gústi sótti stíft til fiskjar á Ráninni og eru til margar sögurnar af honum þar sem hann þrjóskaðist við að fara í land uns veður var orðið rúmlega vitlaust og hann síðastur trillukarla í land og þá jafnvel í fylgd stærri skipa.
Gústa þótti sárt að hætta að snudda í trilluútgerðinni þegar heilsunni tók að hraka því Ránin var hans líf og yndi fyrir utan fjölskylduna sem átti hug hans allan.
Blessuð sé minningin um Gústa frá Gílsholti.

Hallgrímur Tryggvason.


Helgi Unnar Egilsson
F. 15. júlí 1929 - D. 3. maí 2003
Helgi Unnar fæddist að Skarði, Þykkvabæ 15. júlí 1929. Hann andaðist, laugardaginn 3. maí 2003. Foreldrar hans voru Egill Friðriksson, f. 15. febrúar 1901 og d. 27. febrúar 1987 og Friðbjörg Helgadóttir f. 27. janúar 1902 og d. 27. október 1979. Eignuðust þau tvö önnur börn. Þau voru Unnur, sem lést á öðru ári og Málfríður Fanney f. 7. apríl 1928, maki Grettir Jóhannesson f. 11. febrúar 1927 og d. 12. apríl 2000.
Helgi giftist þann 8. júní 1957, Guðríði Steinþóru Magnúsdóttur f. 11. júlí 1937 og d. 2. september 1995 og eignuðust þau þrjú börn. Þau eru: Friðbjörg, f. 19. febrúar 1957, gift Árna Björgvinssyni og eiga þau þrjá syni, Ingvar, Guðmund Jóhann og Björgvin. Guðrún, f. 27. apríl 1958, gift Friðbirni Bjórnssyni og eiga þau fjögur börn, Vigni, Baldur, Helga Rúnar og Margréti Rósu; Þorsteinn f. 22. apríl 1968, giftur Sigurbjörtu Kristjánsdóttur og eiga þau eitt barn, Snorra. Sambýliskona Helga, var Sigurbjörg Jóna Árnadóttir.
Helgi lauk barnaskólaprófi frá Djúpárskóla, Þykkvabæ 1942 og tók vélstjórapróf 1964 í Vestmannaeyjum. Hann stundaði sjómennsku frá Vestmannaeyjum frá fjórtán ára aldri bæði sem háseti og síðar vélstjóri. Hann var meðal annars á Ofeigi og síðan á Eyjabergi í ein tíu ár. Árið 1968 hóf hann störf hjá Fiskiðjunni og starfaði þar fram að eldgosi 1973. Þá flutti hann með fjölskylduna til Keflavíkur. Hann var síðan eina vertíð á Sæunni VE í Vestmannaeyjum. Eftir að Helgi flutti til Keflavíkur starfaði hann sem verkstjóri hjá íslenskum aðalverktökum til ársins 1997 er hann settist í helgan stein. Hann starfaði síðan mikið að félagsmálum og þá helst með eldri borgurum. í púttklúbbi var hann gjaldkeri í mörg ár og var duglegur að ferðast með þeim um landið.
Hin síðari ár komu í ljós miklir matreiðsluhæfileikar Helga og þóttu bæði pönnukökurnar og hin árlega lundaveisla fjölskyldunnar bera gott vitni um það.< Fjölskyldan var Helga mikils virði og var hann ávallt mættur snemma ef einhver átti afmæli þann daginn, bæði til að fagna og til að aðstoða við undirbúning.

Þorsteinn Helgason


Jóhann G. Sigurðsson skipstjóri frá Svanhól
F. 30.júní 1930 - D. 17. okt. 2003
Jóhann G. Sigurðsson í Svanhól var fæddur í Vestmannaeyjum 30. júní 1930. Fullu nafni hét hann Jóhann Guðmundur í höfuð móðurbræðra sinna sem báðir drukknuðu sama árið, 1924. Jóhann Guðjónsson tók, ásamt öðrum manni, út af báti, sem var í heyflutningaferð frá Eyjafjallasandi. Þetta gerðist 20. ágúst. Guðmundur bróðir Jóhanns fórst síðan í miklu slysi við Eiðið, hinn 16. desember, þegar 8 menn fórust af opnum báti sem var að leggja út af Eiðinu og ætlaði út í farþega-og flutningaskipið Gullfoss sem lá þar fyrir utan. Guðmundur ætlaði að ná í ljósmynd af Jóhanni heitnum bróður sínum. Sjórinn tók þungan toll af fjölskyldunni í Norðurbænum á Kirkjubæ árið 1924 og átti enn eftir að höggva stórt í þann sama knérunn, þegar bræðurnir Gísli og Gunnar Guðjónssynir fórust með m/b Víði, 6. febrúar 1938.
Jóhann eða Hanni í Svanhól, eins hann var ætíð kallaður af vinum og vandamönnum, var af gömlum og grónum ættum í Eyjum. Hann átti þar óvenjustóran hóp skyldmenna, bæði í föður- og móðurætt. Foreldrar hans voru hjónin Þórdís Guðjónsdóttir frá Kirkjubæ og Sigurður Bjarnason skipstjóri frá Hlaðbæ. Þórdís var dóttir hjónanna Höllu Guðmundsdóttur frá Vesturhúsum og Guðjóns Eyjólfssonar frá Kirkjubæ sem bæði áttu stóran frændgarð í Eyjum. Sigurður var sonur hjónanna Halldóru Jónsdóttur og Bjarna Einarssonar í Hlaðbæ sem var mikill bústólpi. Bæði voru þau hjón ættuð undan Eyjafjöllum og áttu þar margt skyldmenna.
Bróðir Sigurðar var Björn í Bólstaðarhlíð en systir þeirra, Ingibjörg, varð húsfreyja í Varmahlíð undir Eyjafjöllum. Jóhann ólst upp við gott atlæti í stórum systkinahópi. Systkini hans voru Bjarni Hilmir vélstjóri, Halla húsmóðir, Sigurður vélvirki, og Gunnar vélstjóri og lifa þau öll bróður sinn. Uppeldissystir Jóhanns var Þórey Guðjóns húsmóðir, dóttir Sigrúnar móðursystur Jóhanns, en Sigrún var alla tíð í Svanhól hjá þeim hjónum Þórdísi og Sigurði. Þórey bjó á Selfossi og andaðist fyrir nokkrum árum. Foreldrar Jóhanns, Þórdís og Sigurður í Hlaðbæ, voru sérstakar gæðamanneskjur, gestrisin og höfðingleg og ætíð góð heim að sækja.
Í Vestmannaeyjum og öllu nánasta umhverfi Hanna í Svanhól snerist allt um sjómennsku. Aðeins 14 ára gamall fór hann hálfdrættingur á síld með föður sínum á Kára VE 27 sem var mikið aflaskip undir stjórn Sigurðar sem var um áraraðir einn besti fiskimaður Eyjanna og þá sérstaklega á síld. Þeir voru þarna tveir hálfdrættingar, frændurnir, Jón Bryngeirsson á Búastöðum og Hanni. Síðar fóru þeir, 16 eða 17 ára gamlir, saman á togarann Helgafell VE 32 sem var einn af gömlu síðutogurunum. Árið 1947 lauk Hanni gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum í Vestmannaeyjum. Eftir það var hann á sjónum árið um kring með föður sínum á Kára VE 47 sem var glæsilegur bátur, byggður í Vestmannaeyjum árið 1945. Hanni var dugnaðarsjómaður og að loknu skipstjórnarprófi varð hann stýrimaður með föður sínum og skipstjóri á Birni riddara og Sigurði Gísla sem hann átti ásamt föður sínum.
Jóhann fór í Stýrimannaskólann í Reykjavík árið 1952 og lauk þar hinu meira skipstjóraprófi (2. stigi) vorið 1954. Um það leyti sem Jóhann var við nám í Stýrimannaskólanum, kynntist hann eftirlifandi konu sinni, Guðnýju Guðmundsdóttur hárgreiðslukonu. Foreldrar hennar voru Bjarney Andrésdóttir ættuð úr Dýrafirði og Guðmundur Pálmason frá Rekavík bak Látrum.
Þau Guðný og Jóhann, reistu sér hús við Kirkjubæjarbraut 19 í Vestmannaeyjum og áttu þar mikið myndarheimili. Börn þeirra eru þrjú: Þórdís Bjarney, gift Helga Hermannssyni. Þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn; Hrafnhildur, gift Ólafi Bachmann og eiga þau þrjá syni og eitt barnabarn og Sigurður Hilmir, sem er kvæntur Guðbjörgu Guðjónsdóttur. Þau eiga fjóra syni. Fjölskyldan var því orðin stór. Hún var Hanna til ómældrar gleði en hann var sérstaklega barngóður, ljúfur og hægur í lund en gat þó verið fastur fyrir og ákveðinn. Mikill vinur vina sinna, spaugsamur og kátur í félagahópi og kippti þar í kynið til pabba síns sem var rómaður léttleikamaður.
Hús þeirra Hanna og Guðnýjar fór undir hraun og eimyrju í eldgosinu í Eyjum árið 1973. Þau hjón fluttu þá í raðhús að Ljósalandi 6 í Reykjavík þar sem fallegt heimili þeirra stóð fram á mitt sumar 2003 að þau fluttu að Furugrund 6 á Selfossi. Jóhann var á sjónum til 1974. Eftir það vann hann um tíma í Straumsvík. En sjórinn togaði alltaf sterkt í Hanna og var hann um tíma stýrimaður á m.s. Mælifelli. Eftir að hann kom alfarið í land, vann Jóhann áfram hjá Samskipum í Reykjavík til ársins 1994 en þá varð hann að hætta störfum vegna veikinda.
Ég man eftir Hanna í Svanhól þegar við vorum, skari af krökkum, við luktarstaurinn í Hlaðbæ, í frels eða að hverfa fyrir horn á kvöldin. Einnig var ég með honum sem smápolli í hópi brennustráka ofangirðingar, sem afmarkaðist austan Laufáss og ofan við Vatnsdalstúnið. Frá þessum æskudögum minnist ég hans sem hins góða foringja sem fann öllum hlutverk. Þannig var hann einnig í störfum sínum á sjó og í landi, fyrstur meðal jafninga og mannsæll. Hanni í Svanhól var mikið prúðmenni og drengur góður sem öllum þótti vænt um. Við vorum þremenningar að frændsemi og þótti vænt um okkar fólk. Samfundir voru færri en skyldi og er minn skaðinn. Hanni í Svanhól er einn þeirra samferðamanna sem verður lengi saknað.
Andlát Hanna í Svanhól bar brátt að og hann lést á gjörgæsludeild Landspítala Háskólasjúkrahúss í Reykjavík hinn 17. október 2003.
Jóhann G. Sigurðsson frá Svanhól var jarðsunginn frá Bústaðakirkju hinn 27. október að viðstöddu fjölmenni.
Eftirlifandi eiginkonu og stórri fjölskyldu, systkinum Hanna og öllu þeirra fólki sendi ég einlægar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Hanna í Svanhól.

Guðjón Ármann Eyjólfsson



Friðrik Friðriksson
F. 4. september 1926 - D. 23. maí 2003
Friðrik Friðriksson var fæddur í Vestmannaeyjum 4. september 1926 og dó 23. maí 2003. Sonur hjónanna Sveinbjargar Sveinsdóttur, fædd 2. apríl 1898 og Friðriks Ingimundarsonar, fæddur 17. september 1894. Þau bjuggu lengst af í Skipholti í Vestmannaeyjum. Systkini Friðriks eru: Elín, fædd 6. október 1922, Svanhvít, fædd 29. janúar 1925 og Matthildur, fædd 27. janúar 1932. Hann giftist 26. febrúar 1949, Sigríði Elísabetu Andrésdóttur, fædd 10. júlí 1924, dáin 20. apríl 2003, hún var frá Stóru - Breiðuvíkurhjáleigu en þau skildu árið 2000.
Börn þeirra eru: 1) Guðrún Valgerður Friðriksdóttir, fædd 31. ágúst 1948, hún er gift Ásbirni Guðjónssyni frá Dölum í Vestmannaeyjum. Þau búa á Eskifirði og eiga þrjár dætur og þrjá dætrasyni. 2) Sveinn Friðriksson, fæddur 3. apríl 1953, giftur Kolbrúnu Sigurðardóttur frá Akureyri og eiga þau þrjár dætur. Sveinn og Kolbrún eru búsett í Kaupmannahöfn.
Friðrik fór ungur að vinna í netum hjá Ingólfi Theodórssyni netagerðarmeistara bæði í Eyjum og á Siglufirði á síldarárunum. Hann var mörg ár á sjó, á Kára VE 47 hjá Sigurði Bjarnasyni í Svanhól, á nýsköpunartogaranum Elliðaey VE 10 hjá Ásmundi Friðrikssyni á Löndum, Frigg VE 316 hjá Sveinbirni Hjartarsyni á Geithálsi, nokkur sumur á Sjöfninni VE 37 hjá Þorsteini Gíslasyni í Görðum og hann var um tíma stýrimaður á Björgu VE 5 hjá Einari Guðmundssyni í Málmey. Einnig vann hann ýmis störf í landi, var m.a. ýtustjóri hjá Vestmannaeyjabæ en lengst af var hann bifreiðarstjóri hjá Ísfélagi Vestmannaeyja, eða þar til um gos 1973. Þá fluttu þau til Eskifjarðar þar sem hann starfaði hjá Vegagerðinni og Hraðfrystihúsi Eskifjarðar.
Friðriki voru Eyjarnar hugleiknar, hann fylgdist með öllum fréttum þaðan. Knattspyrnan átti hug hans og fylgdist hann vel með í þeim málum ekki síst með ÍBV. Eftir að hann fluttist til Eskifjarðar, minntist hann oft á Tý með stolti enda var félagið honum kært. Friðrik var dagfarsprúður og mátti ekkert aumt sjá, hann var einnig mikill skapmaður á stundum og ræddum við málin oft af festu, hvort heldur voru verkalýðsmál, bæjarmál eða heimsmálin og notaði hann yfirleitt sterk lýsingarorð um hlutina. Megi minning um góðan dreng lifa.

Ásbjörn Guðjónsson


Sigurður Jónsson
F. 9. júlí 1919 - D. 23. september 2003
Kær vinur minn og fyrrverandi mágur, Sigurður Jónsson Hásteinsvegi 53 Vestmannaeyjum, kenndur við húsið Engey, Faxastíg 25, er látinn. Hann fæddist að Sperli í Vestur Landeyjum 9. júlí 1919 og lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja þriðjudaginn 23. september 2003. Foreldrar hans voru Jón Jónsson frá Króktúni í Hvolhreppi, sonur Jóns bónda þar og konu hans Helgu Runólfsdóttur, Nikulássonar, hreppstjóra á Bergvaði. Jón var fæddur á Króktúni 13. júní 1887 en lést í Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja eftir erfiða sjúkdómslegu 25. sept. 1951. Móðir Sigurðar var Sigríður frá Ystakoti, fædd þar 17. júlí 1885, dóttir Sigurðar Jónssonar, bónda þar, Guðmundssonar Neðradal, Eyjafjöllum og konu hans Ingveldar Magnúsdóttur frá Dagverðarnesi. Sigríður lést í Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 22. sept. 1972. Sigríður og Jón gengu í hjónaband 24.júní 1917. Eignuðust þau 7 börn sem öll eru látin. Sigurður var næst elstur. Þau hafa sennilega öll látist úr hinum illvíga sjúkdómi krabbameini utan Gísli Svavar sem var fæddur 1922 og fórst með m.b. Ófeigi 1. mars 1942, tæplega tvítugur.
Sigurður mágur minn var léttlyndur og ljúfur maður. Fór ávallt vel á með okkur. Sigurður var mikill vinnuþræll og vel að manni, meðan heilsan gaf byr. Sigurður vann ýmis störf eftir að hann hætti sjómennsku, s.s. frystihúsavinnu, byggingarvinnu o.fl. Þegar ég var beðinn um að hlaða minningarvörðuna um varð -og björgunarskipið Þór, þá var það Sigurður sem ég vildi fá sem aðstoðarmann. Var varðan hlaðin úr lábörðu grjóti. Fyrst var mikil leit hjá okkur að finna réttu steinana. Búið var að keyra miklu af grjóti inn á flötina þar sem varðan átti að standa. Var megnið af því ónothæft, nema í uppfyllinguna, sem átti að vera í kringum vörðuna. Svo fór að við fórum norður fyrir Eiði og suður í Klauf til að finna rétta grjótið. Megnið af því var svo sótt í Eiðið. Við þessar athafnir sá ég hvað Siggi minn var ötull og hraustur maður. Við Sigurður og Kristborg, kona hans, vorum alla tíð góðir og traustir vinir. Bjó ég hjá þeim um skeið við gott atlæti þar til ég flutti niður á Herjólfsgötu 11 og hef búið þar síðan hjá góðu fólki. Siggi minn var vel kynntur alls staðar. Hann var mjög jafnlyndur. alltaf léttur í skapi. Siggi minn hefði getað orðið stórsöngvari. Hann átti góða náttúrurödd. Söngvagyðjan var greinilega sterk í honum.
Hinn 14. nóvember 2002 varð hann fyrir því áfalli að fá heilablóðfall og lá í dái á aðra viku. Þegar hann rankaði við sér, kom í ljós að hann var málhaltur, átti erfitt með að tjá sig og maður skildi hann ekki. Brosti bara en hætti að syngja, raulaði stef úr kunnri vögguvísu, alltaf sömu stefin.
Kona Sigurðar, Kristborg Jónsdóttir, fæddist að Meðalfelli í Nesjum, Austur Skaftafellssýslu. Kom hún ung til Vestmannaeyja og gerðist ráðskona hjá bankastjórahjónunum. Kynntust þau Sigurður fljótlega eftir komuna, giftust 16. desember 1945 og eignuðust 5 börn. Eitt lést í frumbernsku, annað af slysförum, Jón Viðar 8 ára gamall. Eftirlifandi eru Ægir og Arnþór sem búa í Reykjavík og Guðlaug Björk, búsett í Vfk í Mýrdal.
Blessuð sé minning Sigga.
Útgerðar - og sjómennskuferli Sigurðar eru ítarlega skráð í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2002.

Runólfur Dagbjartsson.

br>

Sveinn Hjörleifsson
F. 1. ágúst 1927 - D. 4. janúar 2004
Sveinn Hjörleifsson í Skálholti í Vestmannaeyjum var fæddur 1. ágúst 1927. Foreldrar hans voru: Hjörleifur Sveinsson frá Selkoti Austur-Eyjafjöllum f. 23. janúar 1901, d. 29. september 1997 og Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir frá Eskifirði f. 18. október 1903, d. 6. júlí 1970.
Systkini Sveins eru: Anna f. 31. mars 1929, Friðrik Ágúst f. 16. nóvember 1930, Guðbjörg Marta f. 20. júlí 1932 og Hjörleifur Þór f. 7. mars 1940, d. 8. mars 1940.
Eiginkona Sveins frá 25. desember 1948 er Aðalheiður Maggí Pétursdóttir frá Ólafsfirði fædd þar 27. september 1930. Börn Sveins og Aðalheiðar eru: 1) Þóra Sigriður f. 27/9 1948, gift Henrý Ágústi Erlendssyni. Þau eiga 3 börn. 2) Þórey f. 1/9 1951, gift Einari Sveinbjörnssyni. Þau eiga 3 börn. 3) Hjörleifur f. 27/12 1954, hann á 1 son. 4) Ólafur Pétur f. 30/5 1958, d. 12/2 2004 5) Kristbjörg f. 21/5 1965, gift Pétri Fannari Hreinssyni. Þau eiga 3 börn.
Við Sveinn vorum vinir og nágrannar frá fyrstu tíð. Í gamla daga á Landagötunni og síðustu 20 árin á Höfðaveginum númer 1 og 2. Eins og víða á Landagötunni áttu foreldrar hans kýr og kindur. Sveinn varð snemma áhugasamur og duglegur við búskapinn. Ungur að árum fór hann til sumardvalar í sveit austur undir Eyjafjöll til Skærings bónda í Skarðshlíð og líkaði þar vel. Ævistarfið á sjónum átti hug hans lengst af. Hann var mikill aflamaður og hörkusjómaður og átti farsælan skipstjóraferil. Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi heiðraði hann á sjómannadeginum 2002 fyrir þann þátt í störfum hans. Á fyrstu árunum til sjós fékk hann viðurnefnið víkingur og kom það ekki til af engu. Hann var fjallamaður ágætur, að sögn kunnugra, sterkur, snar, léttur og hvetjandi. Strax eftir fermingu fór hann að vinna í fisktökuskipunum sem lestuðu hér fisk á Bretland. Sautján ára, 1945, fór hann að róa á vetrarvertíð á Leó með Júlíusi Hallgrímssyni og var á ýmsum bátum háseti og síðar stýrimaður til 1954. Á þessum árum frá 1947 átti Sveinn trilluna Bláskjá sem hann reri á milli vertíða. Bláskjá notaði hann líka í fýla- og svartfuglaferðir og úteyjasnatt.
Frá 1954 var hann skipstjóri og útgerðarmaður á bátum sem allir báru nafnið Kristbjörg. Í fyrstu voru sameignarmennirnir fjórir en frá 1958 átti Sveinn útgerðina einn. Fyrsta Kristbjörgin VE 70 var 15 tonn. Þá næstu keyptu þeir frá Danmörku 1955, hún var 40 tonn. Þriðju Kristbjörgina, 120 tonn, lét hann smíða í Noregi 1960 og þá fjórðu, VE 71, 270 tonn, keypti hann frá Ísafirði 1973. Hann gerði báðar þessar síðustu út í nokkur ár áður en hann seldi þær um miðjan áttunda áratuginn. Þá eldri var hann síðan með í nokkur haust á síld fyrir þáverandi eigendur. Kappið var alltaf mikið og ekki vantaði dugnaðinn. Vetrarvertíðina 1965 leigði hann Jón Stefánsson af Einari Sigurðssyni og var sjálfur með hann og gerði að auki Kristbjörgina út. Á síðustu útgerðarárunum átti hann Kristbjörgu Sveinsdóttur, 11 tonna dekkbát. Frá 1996 reri hann með Hjörleifi, syni sínum, á trillunni Gými á línu hvert haust fram á vetur að loðnan gekk. Fiskuðu þeir mikið. Oft hringdi hann eftir róður og gaf nákvæma skýrslu, hvar línan var lögð utan í klakka, boða og trintur, tengsli hér og tengsli þar og hvar ástaðan var best hverju sinni. Hann lifði sig svo vel inn í þetta. Hann var ánægður þegar hann var búinn að koma öllum gömlu miðunum inn í GPS-inn og fór þetta allt eftir skjánum.
Skipsrúm á Kristbjörgu voru eftirsótt, alltaf mikil aflavon og talað var um fjör og alls konar sprell þar um borð. Margar sögur eru til af því. Árið 1970 keypti Sveinn allt sauðfé Einars á Arnarhóli þegar hann flutti til Reykjavíkur og var af lífi og sál við fjárbúskapinn eftir það. Hesta eignaðist hann fyrir gos, hætti með þá um tíma en var byrjaður að stússa í hrossarækt aftur. Hann fylgdist vel með að kindurnar og hrossin væru alltaf í góðum haga og alltaf átti hann mikil og góð hey. Óli Pétur, sonur hans, var honum mikil stoð og stytta við búskapinn. Við áttum mikil samskipti í sauðfjárræktinni. Hann var mikill foringi í hópi kindakarla og var gott að hafa hann sem slíkan. Úteyjaferðirnar útbjó hann vel og stjórnaði. Hafði allt tilbúið áður en farið var enda alltaf eldsnemma á fótum. Gætti að leiði og ræsti þegar fært var. Frábær stjórnandi við steðjann og í smalamennskunni. Hann hafði langa reynslu af úteyjaferðum með fé og við eggjatöku. Í mörg ár eftir að hann hætti að fara í björg fór hann með eggjakörlunum í skerin á vorin, Geirfuglasker, Súlnasker og Geldung. Þeir vildu hafa hann til að stjórna þessum ferðum, klár og kunnugur. Hann vildi nýta gæði lands og sjávar, annað var af og frá.
Frá 1986, þegar Heiða veiktist, hugsaði hann um hana heima til 1999 þegar hún fór á spítalann. Óli Pétur var þá orðinn einn heima með þeim. Það var aðdáunarvert hvernig hann hugsaði um hana, eldaði og gerði allt sjálfur sem gera þurfti. Eldamennskan átti vel við hann. Hann hugsaði alltaf og talaði mikið um mat. Eftir sláturtíð á haustin voru tvær stórar frystikistur fullar af góðmeti. Tunna af söltuðu kindakjöti og önnur af söltuðu hrossakjöti á sínum stað. Saltfiskur, saltaðar gellur og kinnar og saltaður fýll líka á sínum stað. Og stundum ýmislegt fleira sem til féll. Allt útbjó hann þetta sjálfur frá fyrstu hendi og naut þess mikið vel. Megnið af síðasta árinu var víkingnum erfitt, hann greindist með krabbamein í mars 2003 og var oft mikið veikur. Það kom ekki í veg fyrir áhuga hans á fiskiríinu og skepnunum sem hann fylgdist vel með. Hann lést á Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 4. janúar s.l. Það er sjónarsviptir að Sveini Hjörleifssyni. Það var alltaf líflegt í kringum hann. Greiðugur var hann með afbrigðum, tilbúinn að leysa hvers manns vanda ef tök voru á svo um var talað. Fjölskyldu hans eru sendar dýpstu samúðarkveðjur.

Friðrik Ásmundsson