Ágúst Gíslason (Valhöll)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júní 2006 kl. 11:04 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júní 2006 kl. 11:04 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ágúst Gíslason fæddist 15. ágúst 1874 og lést 24. desember 1922. Ágúst var sonur Gísla Stefánssonar kaupmanns og Soffíu Andrésdóttur í Hlíðarhúsi. Hann hóf byggingar á húsinu Valhöll við Strandveg árið 1912 og lauk því verki árið 1913.

Ágúst byrjaði ungur á sjó og árið 1906 hafði hann formennsku á Geysi. Veturinn 1907 kaupir hann Njál (7,5 tonn). Stuttu síðar sökk sá bátur við Eyjar í suðaustan ofviðri. Mannbjörg varð.

Eftir það rak Ágúst útgerð til dauðadags.


Heimildir

  • Halldór Magnússon. Fiskimjölsverksmiðjan í Vestmannaeyjum. Blik 1972. 29. árg.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

}}