Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1983/ Frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. janúar 2017 kl. 11:48 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. janúar 2017 kl. 11:48 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big><big><center>'''Frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum'''</center></big></big></big> I haust voru 6 nemendur innritaðir í 2. stig Vélskólans. Þar af hættu 2 á ha...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum


I haust voru 6 nemendur innritaðir í 2. stig Vélskólans. Þar af hættu 2 á haustönn þannig að 4 gengust undir próf eftir haustönnina. Þeir héldu síðan áfram námi á vorönn og tóku próf. Enginn nemandi var í 1. stigi í vetur og er það verulega umhugsunarvert. Skólanefnd Framhaldsskólans boðaði til fundar þann 7. desember 1982 og var eina málið á dagskrá fundarins, fækkun nemenda í Vélskólanum. Á þeim fundi var ákveðið að senda mönnum, sem eru með eða hafa verið með undanþágu til vélstjórnar, bréf og var Gísla Eiríkssyni formanni Vélstjórafélagsins í Vestmannaeyjum og undirrituðum falið það verkefni. Um pað bil 70 bréf voru send og menn hvattir til þess að kynna sér möguleika til þess að afla sér réttinda til vélstjórnar. Því miður býst ég ekki við því að undirtektir verði góðar á meðan jafn auðvelt er að fá undanþágur og ekki er neinn munur gerður á réttindamönnum og réttindalausum hvað varðar kaupgreiðslur. Ýmsar leiðir eru til þess að minnka undanþágufjöldann, en menn veigra sér við að beita þvingunar-aðgerðum í því. sambandi. Það ætti að vera augljós kostur að mennta sig til starfsins eins og þarf til flestra annarra starfa. T.d. sótti ég um undanþágu til aksturs 5 smálesta vöru-bifreiðar, en var synjað um þá undanþágu vegna þess að ekog hér, þar sem skólinn er við nefið á mönn-um ættu þessi mál að vera í miklu betra lagi. Námsefnið í skólanum hefur verið að breytast og hefur verið aukið þannig að 1. og 2. stig er nú orðið þrjár annir hvort stig. í 1. stigi er búið að bæta við efnafræði, rökrásum og efnafræði og aukin kennsla í rafsuðu og logsuðu. í 2. stigi hefur verið aukin kennsla í ensku, málmsuðu, stýritækni (sjálfvirkni), teikni-fræði og tekin upp kennsla í tölvufræði. Enn-þá er þó hægt að ljúka réttindaprófi 1. stigs á einum vetri, en það veitir þó ekki rétt til áframhaldandi náms. í vetur hafa kennt við Vélskólann: Karl Marteinsson smíðar og suða, Grímur Gísla-son vélfræðireikning, rafmagnsfræði, teikn-ingu og stærðfræði, Kristján Jóhannesson eðlisfræði, kælitækni, vélstjórn verklega og bóklega og efnafræði, Guðlaugur Sigurgeirs¬son rafeindatækni, Áslaug Tryggvadóttir dönsku, Snorri Óskarsson íslensku og Þor-gerður Jóhannsdóttir ensku. Svokölluð starfsvika var haldin 7. til 12. mars og var hún tileinkuð norræna umferð-aröryggisárinu. Námsferðir voru farnar um borð í Herjólf og í frystivélasal Vinnslu-stöðvarinnar. Nýtt kennslutæki bættist við tækjakost skólans. Er það ætlað til kennslu í rafmagns-fræði og þá sérstaklega í sambandi við rafala og rafmótora. Kristján Jóhannesson, vélfræðingur