Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1983/ Skipalyftan hf.

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. desember 2016 kl. 11:22 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. desember 2016 kl. 11:22 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) (Ný síða: Kristján Ólafsson: Skípalyftan hf. Skipalyftan hf. var stofnuð 14. nóvember 1981. Undirbúningur að stofnun félagsins hafði þá staðið yfir alllengi eða allt frá árin...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristján Ólafsson:

Skípalyftan hf.


Skipalyftan hf. var stofnuð 14. nóvember 1981. Undirbúningur að stofnun félagsins hafði þá staðið yfir alllengi eða allt frá árinu 1978, en þá, á miðju sumri, var endanlega ákveðið um staðsetningu lyftunnar á Eiðinu. í fyrstu var ætlað að fyrirtæki og aðilar, er tengdust skipaiðnaði yrðu þátttakendur í stofnun félagsins, en að lokum urðu það hluthafar vélsmiðjanna Magna hf. og Völ-undar hf., ásamt raftækjaverkstæðinu Geisla hf. sem að stofnun félagsins stóðu. Segja má, að þá þegar hafi menn brett upp ermarnar, því 20. nóvember var hafist handa um byggingu húss á Eiðinu. Húsið, sem er um 11.000 m, var keypt frá danska fyrirtækinu Greinarhöfundur Kristján Gunnlaugur Axelsson

Dansk Stálkonstrukion og reistu starfsmenn danska fyrirtækisins húsið. Ástæðan til þess að keypt var hús erlendis frá var hagstætt verð og skammur byggingar-tími. Flutningar véla og verkfæra í nýja húsið hófust um miðjan apríl 1982 eða réttum fimm mánuðum eftir að Njáll Andersen stjómarformaður Skipalyftunnar h.f. tók fyrstu skóflustunguna að húsbyggingunni. Á sama tíma var unnið að uppsemingu lyftu-pallsins og lokafrágangi lyftunnar. Lauk þessum verkum seinnihluta júnímánaðar og 27. júní rann stóra stundin upp. Þann dag var skipalyftan vígð við hátíðlega athöfn og mannvirkið afhent rekstraraðilum. Jón í. Sigurðsson flutti aðalræðu dagsins og kom þar fram að fyrst var þessu máli hreyft árið 1954. Sagði Jón að síðan hefði „verið langur og strangur róður við mismunandi veður og sjólag. í mörg ár hafa framsýnis og dugandi menn andæft og róið þeirri félagslegu gnoð, sem nú lenti í nausti, tryggð með félagslegum samtakamætti, áhuga og bjartsýni á því að skapa sem besta aðstöðu fyrir hina vinnandi hönd, byggðarlaginu til farsældar og hag-sældar, og sjófarendum til aukins öryggis". Afhenti Jón síðan Njáli Andersen stjórnar-formanni Skipalyftunnar hf. lyklavöldin að skipalyftunni. Fjöldi fólks fylgdist með er fyrsta skipið, b/v Sindri Ve, var tekinn á land. Hófst nú starfsemin fyrir alvöm og komu japönsku skuttogaramir sjö talsins, hver af öðmm, og var Bjartur frá Neskaupstað fyrst-ur þeirra. Mikil vinna var í öllum skipunum


Peir unnu við lengingu Andvara VE

og unnu starfsmenn fyrirtækisins hörðum höndum svo takast mætti að standa við gefin loforð um skiladag hvers skips. Lauk þessum verkum á tilsettum tíma og voru útgerðar-menn skipanna ánægðir með framkvæmd og gæði verkanna. Auk starfsmanna Skipalyft-unnar unnu að þessum verkefnum fjölmargir iðnaðarmenn í bænum. Alls munu útgerðir ofangreindra skipa hafa keypt þjónustu hér í bæ fyrir um 9 millj. kr. á fjórum mánuðum. Ekki voru þetta einu verkefnin sem unnið var að, því að slipptökur urðu 32 talsins á sex mánuðum eða frá 27. júní til 31. desember 1982. Flest skip Eyjaflotans voru tekin á land og framkvæmt á þeim venjulegt viðhald. I desember var hafin smíði nýrrar brúar á m/b Andvara Ve og skipið lengt um 3,2 m. Á sama tíma var m/b Danski Pétur tekinn á land og skipinu breytt til skuttogs ásamt því að stjórnborðsgangi skipsins var lokað. Lauk breytingum á þessum tveim skipum í lok febrúar og þóttu þær hafa tekist vel. í mars var langþráðu takmarki náð er Herjólfur var tekinn á land og nauðsynlegt viðhald framkvæmt hér heima. Eftir