Hlýri
Hlýri (Anarhichas minor). Latneska orðið minor þýðir „yngri“ bróðir steinbítsins, þar sem hann fannst síðar.
Stærð: Hlýrinn er töluvert stærri en steinbíturinn, við kynþroska er hann yfirleitt 70-90 cm og 4-8 kg. Verður sjaldan stærri en 140 cm, þá um 25 ára aldur. Getur orðið allt upp í 180 cm og 26 kg.
Lýsing: Hann er gulbrúnn og flekkóttur. Hlýrinn hefur veikari tennur en steinbítur. En roðið er sterkara en á steinbít og þykir því en betra til skinngerðar.
Heimkynni: Kaldsjávarfiskur við Ísland, Svalbarða, Grænland og Nýfundnaland. Er á um 100 m dýpi. Lífshættir: Hér er hann allt í kringum landið en algengari í kalda sjónum. Lifir í sand- og leirbotni á 100-700 m dýpi.
Fæða: Lifir aðallega á skrápdýrum. Talið að hann sækist mikið í steinbítshrogn.
Hrygning: Hann hrygnir á allmiklu dýpi. Eggin eru 15-35 þúsund. Eggin límast saman og festast við botninn.
Nytsemi: Hlýrinn veiðist á línu og í botnvörpur, veiðist aðallega í kalda sjónum. Hann þykir ekki eins bragðgóður og steinbítur en kemur þó fyrir að hann er roðflettur og seldur sem steinbítur.