Sigurbjörn Sveinsson (rithöfundur)
Sigurbjörn Sveinsson fæddist 19. október 1878 í Austur-Húnavatnssýslu.
Sigurbjörn var barnakennari í Vestmannaeyjum frá 1919 til 1932 en kenndi einnig ensku og hljóðfæraleik í einkatímum. Sigurbjörn er heiðursborgari Vestmannaeyjakaupstaðar.
Sigurbjörn skrifaði fjöldamargar barna- og unglingabækur, leikrit og ljóð. Þar má nefna Bernskan, Geislar, Margföldunartaflan og Æskudraumar en einnig barnaleikritið Glókollur sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu 1972.
Sigurbjörn lést árið 1950.
Heimildir
- Íslenskt skáldatal. 1976. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.