Leó VE 400 aflaði 2.100 tonna af bolfiski 1969. Brúttó aflaverðmæti: 14.060.000
Skipshöfnin á Leó. Talið frá vinstri: Jón Guðmundsson, Óskar Þorleifsson, Guðbrandur Valtýsson 2. vélstjóri, Ægir Sigurðsson, Sigmar Ólafsson, Sigurjón Óskarsson stýrimaður, Óskar Matthíasson skipstjóri með Leu, Sveinbjörn Snæbjörnsson matsveinn, Matthías Sveinsson 1. vélstjóri, Elvar Andrésson, Jón Úlfarsson.
Hjónin Þóra Sigurjónsdóttir og Óskar Matthíasson. Frú Þóra er góður fulltrúi íslenzku sjómannskonunnar og tekur með lífi og sál þátt í störfum eiginmanns síns og sona. Þau hafa eignazt 7 börn og eru þrír sona þeirra hjóna nú aflasælir skipstjórar í Vestmannaeyjum.