Slysavarnadeildin Eykyndill

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 23:55 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 23:55 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Slysavarnadeildin Eykyndill var stofnuð 25. mars 1934. Á fyrsta starfsári Eykyndils gengu 264 konur í félagið. Starfsemi félagsins gengur út á að koma í veg fyrir slys og hafa viðbúnað tilbúinn ef þau gerast. Er það bæði fyrir sjúkrastarfsemi á landi, s.s. í sjúkrabílinn, elliheimilið og á sjúkrahúsi, og fyrir sjávarútveginn, skip eru búin slysavarnatækjum frá Eykyndli og björgunarskýlið á Faxaskeri er að stórum hluta Eykyndli að þakka.