Slysavarnadeildin Eykyndill

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 13:37 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 13:37 eftir Margret (spjall | framlög) (smá breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Slysavarnardeildin Eykyndill var stofnuð 25. mars 1934. Á fyrsta starfsári Eykyndils gengu 264 konur í félagið. Starfsemi félagsins gengur út á að koma í veg fyrir slys og hafa viðbúnað tilbúinn ef þau gerast. Er það bæði fyrir sjúkrastarfsemi á landi, s.s. í sjúkrabílinn, elliheimilið og á sjúkrahúsið, og fyrir sjávarútveginn, skip eru búin slysavarnartækjum frá Eykyndli og björgunarskýlið á Faxaskeri er að stórum hluta Eykyndli að þakka.