Jóhann Bjarnasen (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 11:12 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 11:12 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Bjarnasen var fæddur í Skagafirði árið 1810. Kona hans var Sigríður Jónsdóttir fædd 1816. Þau eignuðust fjögur börn.

Þessi hjón fluttust til Vestmannaeyja árið 1837 og brátt gerðist Jóhann verslunarstjóri í Vestmannaeyjum.

Hjónin settust að í húsinu Sjólyst við Strandveg 41 og bjuggu þar fyrstu árin. Síðar fluttust þau í húseign sem hét Kornhóll. Það hús stóð austan við Skansinn.

Sigríður lést árið 1842 og Jóhann 1845.


Heimildir

  • Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. 1976.