Árni Diðriksson
Árni var bóndi og formaður í Stakkagerði en hann var frá Hólmi í Austur- Landeyjum. Bróðir hans var Þórður Diðriksson sem var kunnur mormónatrúboði. Árni var merkisbóndi, hreppstjóri um skeið og flokksforingi í Herfylkingunni. Árni var kvæntur Ásdísi Jónsdóttur frá Berufirði. Dóttir þeirra hjóna var Jóhanna.
Árni Diðriksson hrapaði til bana í Stórhöfða árið 1903.
Heimildir
- Þorsteinn E. Víglundsson. Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1962.