Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1994/Formannavísur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. september 2015 kl. 11:47 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. september 2015 kl. 11:47 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big>'''Formannsvísur'''</big></big> Formannavísur, kveðnar um formenn sem stunduðu róðra frá Vestmannaeyjum vetrarvertíðina 1944. Vísurnar gerði Loftur Guðmundsson....)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Formannsvísur

Formannavísur, kveðnar um formenn sem stunduðu róðra frá Vestmannaeyjum vetrarvertíðina 1944. Vísurnar gerði Loftur Guðmundsson. Guðmundur Loftsson, sonur hans, lánaði Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja gamla stílabók með 40 formannavísum. Vegna þess að blaðinu hefur borist mikið efni verða vísurnar að bíða birtingar, en hér birtist sýnishorn.
Vísurnar verða allar birtar í nœsta blaði, ásamt nokkrum orðum um höfundinn.

Einar Runólfsson
F. 25. des. 1918
Ísleifur VE 63
Einar af keppni æskumanns Ísleifi af hrönnum beitir aflasæld og
heppni hans hróður með réttu veitir.

Guðni Grímsson
F. 15. janúar 1904
Maggy VE 111
Guðni beitir Maggy mót mararstreng til fanga, bregður lítt við
bárurót þótt brenni selta um vanga.

Karl Guðmundsson
F. 6. apríl 1911
D. 16. janúar 1986
Ársæll VE 8
Þéttur fyrir og þybbinn að sjá þungur að hvarmi og brúnum Karl frá
Viðey Ársæli á öslar að þorskatúnum.

Júlíus Ingibergsson
F. 17. júlí 1915
Vestri VE 16
Júlíus Vestra að veiðiför vel til afla reiðir með þreki og festu, fár á
svör fæst ei um allra leiðir.

Jón Jónsson
F. 30. sept. 1892
D. 18. júiú 1956
Unnur VE 80
Hægur í skapi, hljóður í för, heppinn með stjórn og afla, ýtir Jón úr
Eyjavör Unni á báruskafla.

Guðjón Vigfússon
F. 15. sept. 1902
Sæfell VE 30
Guðjón skipstjórn gætnisprúð við grimmlund hafs og manna stýrir
fornri Sæfellssúð um sollna vegi hranna.

Ólafur Önundsson
F. 21. sept. 1915
D. 27. júlí 1970
Haukur VE 234
Ungur á Hauk við ægisdyr Ólafur miðin rækir í vestfirskt kappa og
víkingskyn veiðigæfu sækir.