Bjarni Ólafsson (Svaðkoti)
Bjarni var bóndi og formaður í Svaðkoti. Hann var fæddur að Steinmóðarbæ undir Eyjafjöllum 22. janúar 1836. Kona Bjarna var Ragnheiður Gísladóttir ættuð úr Fljótshlíð. Sagt var að þau hjón hefðu verið ákaflega samhent og dugmikil í búskapnum.
Bjarni fórst af bát sínum 16. júní 1883. Veður var gott og sjór sléttur en talið var að illhveli hefði grandað bátnum.
Meðal barna Ragnheiðar og Bjarna var Guðríður í Brautarholti, kona Jóns Jónssonar frá Dölum.
Heimildir
- Þorsteinn E. Víglundsson. Blik, ársrit gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1962.