Bárustígur 17
Húsið við Bárustíg 17 var byggt árið 1962. Byggingin er í dag nýtt sem skrifstofuhúsnæði en var um tíma húsnæði Byggðasafns Vestmannaeyja (um 1973). Einnig hefur það hýst Skrifstofu Bæjarfógeta (til 1980).
Í dag er í húsinu starfandi Sparisjóður Vestmannaeyja, Lögfræðistofa Helga Bragasonar og Jóhanns Péturssonar og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte & Touche. Árið 1992 var húsið sameinað húsnæði verslunarinnar Mózart.
Heimildir
- Bárustígur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.
![](/images/thumb/a/ae/Sparisj%C3%B3%C3%B0ur_eldri_mynd.jpg/300px-Sparisj%C3%B3%C3%B0ur_eldri_mynd.jpg)