Vídó

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. mars 2006 kl. 15:31 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. mars 2006 kl. 15:31 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Nýr texti)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurgeir Ólafsson skipstjóri var ævinlega kallaður Siggi Vídó. Margir hafa haldið að þeta viðurnefni tengist knattspyrnu en Siggi var lengi vel markvörður hjá Íþróttafélaginu Þór. Sú er þó ekki raunin, viðurnefnið er dregið af æskuheimili hans, Víðivöllum. Hann var kallaður Siggi Víðó sem umbreyttist síðan í Siggi Vídó. Svo kyrfilega festist þetta viðurnefni í sessi að eiginkonan, Erla Eiríksdóttir var aldrei kölluð annað en Erla Vídó sem og börn þeirra hjóna sem öll nefna sig Vídó. Er þetta viðurnefni orðið eins konar ættarnafn þessarar fjölskyldu.