Brynjólfur Einarsson (skipasmiður)
Brynjólfur Einarsson, bátasmiður, var fæddur á Brekku í Lóni árið 1903. Hann lést 93 ára að aldri árið 1996. Brynjólfur orti mikið af vísum og birtum við hér smá sýnishorn:
---
- Eyverjar flestir eru nú
- uppteknir þorsk að skera.
- Þó er eindregin þeirra trú
- að þetta sé heilög vera.
---
- Breyti um veður þá veit ég þú sérð
- í vatnsmálum okkar hvað skeður.
- Hér verður allsherjar gosdrykkjagerð
- gang'ann í útsynnings veður.
- Ort vegna megnaðs vatns í Vestmannaeyjum af völdum gossins í Surtsey.
---
- Fjandi fannst mér það skrítið
- að fá henni svona breytt.
- Hún færðist úr lagi lítið
- en lagaðist ekki neitt.
---
- Kristján féll úr fræðslunefnd
- flestum þótti lítið tap.
- Ætli það sé ekki hefnd
- á hann fyrir bulluskap
---
- Óprýða ljótir lestir
- lífsferil þessa manns
- enda formæla flestir
- fæðingardegi hans.
Tildrög vísu: Afmælisvísa
---
Hér yrkir Brynjólfur um vísur sínar:
- Um vísur mínar helst er þetta að hafa í minni
- þær áttu við á einum stað
- og einu sinni.
Heimildir
- Dagblaðið Tíminn 8. desember 1963.
- Vísnasafn Sigurðar J. Gíslasonar í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.